Creamy Delight Organic Gjafabox
FULLKOMIN JÓLAGJÖF FYRIR ÞÍNA ÁSTVINI EÐA JAFNVEL VINNUSTAÐINN 🎁
Handgerð súkkulaðistykki með "creamy" fyllingu frá Tékklandi úr lífrænu hágæða hráefni sem hafa komið flestum okkar viðskiptavinum vel á óvart. Stykkin koma í virkilega fallegri gjafaöskju og því einstaklega fögur gjöf sem hittir beint í mark, sérstaklega á meðal súkkulaði unnenda. Það getur verið ævintýri fyrir bragðlaukana að prófa þessi stykki þar sem þau innihalda allt frá hindberjabragði til nougat og meira að segja ofurfæðið guarana. My Raw Joy framleiðir einungis heilsusamlegt hágæða súkkulaði sem er samt á pari við þessi sem þú ert vön eða vanur að versla út í búð. Fyrir okkar leiti eru þessi þó margafalt betri, ekki bara á bragðið heldur líka þar sem þau innihalda ekki unnin sykur og flokkast undir hráfæði til að varðveita næringarefni. Hreina kakóið frá Perú sem þau nota í stykkin er til dæmis sannkölluð ofurfæða og inniheldur mikið magn af andoxunarefnum.Day + Night Hydration Set
DÁSAMLEGT SETT SEM VEITIR RAKA OG NÆRIR HÚÐINA. TILVALIÐ FYRIR ÞÍNA HÚÐRÚTÍNU!
SETTIÐ INNIHELDUR EFTIRFARANDI VÖRUR:- Lífrænt andlitsserum með kaffiolíu frá UpCircle (30 ml.) Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn- og rosehip olíu. Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Notaðu serumið á morgnana eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
- Rakakrem með E-vítamíni og argan skeljum (60 ml.) kremið er ríkt af andoxunarefnum og hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Kremið inniheldur kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
- Næturkrem með hýalúrónsýru og niacinamide (B3 vítamín) (55 ml.) milt og ilmefnalaust sem hentar öllum húðtýpum. Kremið sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuladðan svefn.
UPCIRCLE LOFORÐIÐ
100% endurvinnanlegar umbúðir og allar vörur eru framleiddar á siðferðislegan máta án pálmolíu, parabens, phthalates, sílíkon, steinefnaolíu og parfum. Þessar vöru eru náttúrulegar, umhverfisvænar, vegan og án ofbeldis. ÁFYLLING: fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11Bath Salts with Epsom, Sea and Himalayan Pink Salt 350 ml.
These beautifully scented bath salts feature luxurious natural salts and aromatic botanicals to help calm the mind and relax the body. Upcycled rose petals provide an uplifting floral scent, whilst the combination of lavender and geranium oil grounds the senses. Whilst you unwind and relax, the bath salts get to work.
Each jar is brimming with upcycled rose petals and contains a trio of natural salts. The three natural salts include muscle-relaxing Epsom salt, breakout-busting sea salt and anti-pollutant Himalayan pink salt.
Reused, repurposed, reloved: These bath salts are made with upcycled rose petals to inspire relaxation and to invigorate the senses.
The UpCircle Promise
Natural, sustainable, vegan & cruelty-free. Housed in 100% plastic-free, refillable packaging.
The Festive Trio
THE FESTIVE TRIO frá UpCircle er skemmtileg gjöf sem inniheldur:
• Róandi líkamsolíu sem inniheldur endurnýtta ástaraldinolíu
• Endurlífgandi heimilis ilm sprey með endurnýttum greipaldin safa
• Andoxandi varasalvi með endurnýttri hampfræolíu
Varasalvinn frá Upcircle nærir og mýkir varirnar ásamt því að veita þeim góðan raka. Varasalvinn inniheldur endurnýtta hampfræolíu, shea smjör, róstinda- og greipaldin olíu. Þessi varasalvi er skyldueign yfir vetrartímann.
Heimilis ilmspreyið ("home mist") býr yfir dásamlegum ilm af sítrónugrasi, greipaldin og lavander. Þú þarft bara nokkur sprey til að rýmið verði að sannkölluðu "winter wonderland".
Líkamsolían býr yfir frískandi blöndu af ástaraldin-, mandarínu og kumquat olíum sem dragast hratt inn í húðina og næra hana vel. Þú verður ekki öll/allur olíukendur við notkun á þessari líkamsolíu og lyktin sem hún skilur eftir sig er algjör unaður!