Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 20ml
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎Face Scrub Citrus Blend with Coffee + Rosehip Oil 30ml
UNAÐSLEGUR KAFFISKRÚBBUR MEÐ SÍTRUS FYRIR FLESTAR HÚÐTEGUNDIR EN SÉRSTAKLEGA HANNAÐUR FYRIR ÞURRA HÚÐ
Þessi andlitsskrúbbur frá UpCircle inniheldur rosehip-, sætappelsínu og sítrónukjarnaolíur. Sætappelsínuolían hefur sótthreinsandi og bólgueyðandi áhrif sem stuðlar að minni roða og ertingu í húð, á meðan sítrónuolían frískar upp á húðina. Með þessum sótthreinsandi eiginleikum getur skrúbburinn hjálpað við meðhöndlun á bólum og öðrum blettum. Skrúbburinn fjarlægir dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og endurnærðari. Sheasmjörið í skrúbbnum setur síðan punktinn yfir i-ið með góðum raka. Skrúbburinn er unninn úr úrvals Arabica kaffibaunakorg sem hefði annars farið til spillis frá kaffihúsum víðsvegar um London. Þessi skrúbbur hefur fengið birtingu í tímaritum á borð við The Times, Forbes, Glamour, The Sunday Times, Refinery 29, The Independent, Good Housekeeping og fleiri tímaritum.Afhverju að nota kaffiskrúbb?
- Kaffiskrúbbar eru fullir af andoxunarefnum og koffíni sem bæði hreinsar og eykur blóðflæði
- Hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við exem, acne, bólur og slitför
- Koffínn hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpar þeim sem glíma við bólgur og roða