Mjúkir Bamburstar
Miðlungs Bamburstar
Miðlungs bamburstarnir frá Tropic eru með bambus skafti og miðlungs stífum hárum búin til úr bambus efni og nylon. Umbúðirnar eru gerðar úr 100% endurunnum pappír. Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og því getur skipt sköpum fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr náttúrulegu efni sem brotnar niður í náttúrunni frekar en tannbursta sem er búinn til úr plasti og getur tekið allt að þúsund ár að brotna niður og jafnvel eftir þann tíma lifa skaðleg efni úr plastinu áfram í enn lengri tíma í umhverfinu.
Bambus er líka þekkt fyrir þann eiginleika að bakteríur þrífast ekki vel í því: “Another advantage of bamboo is that it is naturally antimicrobial. There’s a reason cutting boards and kitchen utensils are made out of wood and bamboo. Unlike plastic, properties inside the bamboo kill bacteria that penetrate it’s surface, providing long-lasting protection against harmful bacteria.”
Ef þú kýst heldur mjúk hár í tannburstun þá mælum við með Mjúkur Bambus Tannbursti.
Golden Mellow Organic 200 gr.
INNIHALDSEFNI: Túrmerik*, ashwagandha*, engifer*, kanill*, lucuma* og kókosmjólk* (*lífrænt)
Golden Mellow er fullkomið fyrir dýrindis túrmerik bolla sem inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni. Þú setur einfaldlega 1. tsk. í heita eða kalda (plöntu)mjólk og síðan er sætugjafi valkvæmur. Þú getur einnig sett Golden Mellow í jógúrt, graut, þeyting eða í vatn.
FRÆÐIN: Ashwagandha (Withania Somnifera) er talin ein af mikilvægustu jurtunum í Ayurveda (the traditional system of medicine in India) en hún hlýtur þann titil fyrir að vera kennd við slökun og svefngæði. Somnifera þýðir einmitt á latnesku "sleep-inducing".
Virka efnið í svörtum pipar (piperine) er talið geta aukið upptöku andoxunarefna í líkamanum en þau lífrænu hráefni sem eru í Golden Mellow eru einmitt rík af andoxunarefnum! Við hvetjum þig því til að bæta við smá svörtum pipar út í drykkinn eða það sem þú matreiðir með Golden Mellow.
Við kaup á þessari vöru hefur þú kost á að hlaða niður e-bók með fróðleik og dýrindis uppskriftum til að styðjast við.
Gyllt mjólk fyrir 1 bolla
Hráefni:
- 1-2 tsk Golden Mellow
- 250ml plöntumjólk (t.d. barista)
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvæmt)
Aðferð:
1. Hitaðu mjólkina í litlum potti eða notaðu flóara
2. Blandaðu Golden Mellow við mjólkina en við mælum með mjólkurflóara
3. Njóttu í þínum uppáhalds bolla!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu
Lyfja • Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni.
Gut Restore Organic 150 gr.
ATH. ÞAÐ ER 70% AFSLÁTTUR SÖKUM STIMPILS (29.03.24) EN Í GÓÐU LAGI MEÐ HRÁEFNIÐ EFTIR ÞANN TÍMA!
Gut Restore er hágæða meltingavara sem inniheldur 5 milljarða góðgerla frá plönturíkinu og nauðsynleg meltingarensím en þú setur aðeins tvær teskeiðar í kalt vatn fyrir fljótlegan og suðrænan drykk fyrir þína fyrstu máltíð dagsins! Gut Restore var hannað til þess að efla starfsemi þarmaflórunnar en þarmaflóran en talið er að um 70% ónæmiskerfisins sé hýst í þörmunum. Því er afar mikilvægt að hlúa vel að þessum góðu bakteríum & Gut Restore getur hjálpað með það- Innihladsefni: mangó*, gulrætur*, gerjað engifer*, ananas*, Lactobacillus acidophilus, Bifidobacerium lactis, Lactobacillus plantarum. (*lífrænt)
- Góðgerlarnir hafa náttúrulega húðun þannig þeir byrja ekki að vinna fyrr en þeir eru komnir í þarmaflóruna til að skila árangri á réttum stað.
- Athugið að það má taka vöruna hvenær sem er yfir daginn en á morgnana getur skilað bestum árangri.
- Þyngd 150 gr. | Skammtastærð: 2 tsk. (30 skammtar í 150 gr.)
Meltingartvennan
ATH. ÞAÐ ER AUKA AFSLÁTTUR SÖKUM STIMPILS Á GUT RESTORE (29.03.24) EN Í GÓÐU LAGI MEÐ HRÁEFNIÐ EFTIR ÞANN TÍMA <3
MELTINGARTVENNAN inniheldur Gut Restore og Gut Feeling sem eru hágæða meltingarvörur og geta stuðlað að betri meltingu!- Gut Restore inniheldur 5 milljarða góðgerla sem eru náttúrulega húðaðir og lifa af ferðalagið niður í þarmana. Lítil fyrirhöfn en þú setur aðeins 2 tsk. í kalt vatn á hverjum degi fyrir bestu virkni.
- Gut Feeling er frábær fljótlegur sellerí safi sem þú setur 2 tsk. af í vatn fyrir 4 grömm af trefjum og meltingarensím sem næra þessa tilteknu góðgerla.
Hreinsibursti fyrir rör
Rawnice Vanilluprótein
BRAGÐGOTT VEGAN PRÓTEIN ÁN GERVISÆTU MEÐ DÁSAMLEGU VANILLU BRAGÐI
Þetta prótein er ekki einungis 100% vegan og bragðgott, heldur einnig ketóvænt, án GMO, glútenlaust og án soja. Próteinið er framleitt í Svíþjóð og inniheldur meðal annars: Rís- og baunaprótein: sem er öflugur og auðmeltanlegur próteingjafi. Inulin trefja: til að næra góðu bakteríurnar í þarmaflórunni Meltingarensín: til að auka upptöku næringarefna í líkamanum CocoMineral®, avókadó olíu og hörfræ olíu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Kringlu, Smáralind, Skeifu, Garðabæ, Spöng, Akureyri og Eiðistorg Krónan: Flatahrauni, Bíldshöfða, Skeifunni, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Akureyri og SelfossiCurcumin 50 gr.
100% HREINT KÚRKÚMÍN DUFT SEM ER VIRKA EFNIÐ Í TÚRMERIK 💛
Þetta krydd eða ofurjurt eins og við köllum hana, hefur verið notuð í ayurveda og aðrar náttúrulækningar í þúsundir ára. Kúrkúmín hefur sterka andoxunareiginleika sem getur haft jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Kryddið er þekkt fyrir að geta dregið úr krónískum bólgum í líkamanum sem er mikilvægt til að vinna gegn krónískum sjúkdómum. Eins hefur kúrkúmín hjálpað mörgum sem eru að glíma við liðagigt með því að draga úr verkjum og stífleika í liðunum. Heilsufarslegur ávinningur kúrkúmín er talinn tengja við heilaheilsu, sjónheilsu og nýrnaheilsu. Athugið að eitt og sér getur líkaminn átt erfitt með upptöku andoxunarefnanna í kúrkúmín en ef þú setur smá svartan pipar á móti, þá eykur það upptökuna og ávinning sömuleiðis um allt að 2000%.ÞÚ SETUR EINFALDLEGA 1 TSK. Í FLÓAÐA MJÓLK, VATN, ÞEYTING, BAKSTURINN, GRAUTINN, JÓGÚRTIÐ EÐA HVAÐ SEM ER.
DUFTIÐ GEFUR FALLEGAN GULAN LIT OG GETUR VIRKAÐ SEM NÁTTÚRULEGUR MATARLITUR.
Activated Charcoal duft
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika en það getur dregið í sig og bundið niður skaðleg efni í líkamanum.
- Lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Pink Latte Pakkinn
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu.
Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.
INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:
- Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
- Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
- Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance
UPPSKRIFT AF MOON MILK
- 1 tsk. Moon Balance
- 1 tsk. Plant Collagen
- 1 bolli plöntumjólk
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Rawnella Spread Organic 200 g.
Nutella heyrir sögunni til, RAWNELLA er klárlega málið!
Þessi súkkulaðismyrja er strangheiðarleg og ó, svo ljúffeng! Inniheldur aðeins þekkt og 100% lífræn hráefni. Smyrjan er tilvalin á ristað brauð, í hafragrautinn, til að dýfa jarðaberjum í, sem topping á ofurskálar eða jógúrt eða í baksturinn. Þú getur jafnvel borðað það eintómt með skeið...
- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Rjómakennd áferð
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Choco Bar Organic with Peppermint 30 g.
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur piparmyntu fyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara!
Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur.
Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar.
Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu