Sýna 49–60 af 81 niðurstaða

Mini Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera

kr.3.090

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð eins og hefur komið fram. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11      

Rawnice Milk Frother

kr.2.303

FLÓARI DRAUMA OKKAR 

Við kynnum Rawnice mjólkurflóarann. Hann er mattur með fallegri bleikri og fjólublárri litasamsetningu og algjör gæðavara sem umbreytir drykkjunum í flóaða fegurð . Með "non-slip" gripi og öfluga virkni hefur mælum við 110% með þessum flóara .
*Ath. batterí eru ekki innifalin & hann má ekki setja í uppþvottavél, nóg að handþvo hann eftir hverja notkun*

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.290
  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi
   

Mini Ice Cube Tray

kr.1.194

"SÆTUSTU KLAKAR SEM ÞÚ MUNT GERA" 🌈

Algjör leikbreytir í drykkjagerð en þetta klakaform býr til 160 litla pons klaka sem gera alla drykki fallegri. Við kaup á þessu klakaformi býðst þér ókeypis 21-recipe Drinks e-bók frá Rawnice (hún er niðurhalanleg eftir kaup) 🍹 Ekki sætta þig við hefðbundna klaka þegar þú hefur kost á þessum. Allavega ekki þegar gestir eru annars vegar 🧊  

Shampoo Créme with Pink Berry

kr.3.890
100% náttúrulegt sjampó með hágæða endurnýttum hráefnum. Þessi nýstárlega og vandaða formúla skilar miklu árangri strax en einn þvottur er á við þrjá þvotta með hefðbundnu sjampói. Þetta sjampó er vegan og hentar öllum hártýpum á borð við afro, litað hár, þurrt hár og fitugt hár. Formúlan er auðvitað án sílíkons og súlfata. "I'm an ex senior hairstylist of 12 years. When I blow dried and straightened my hair after using this, I was blown away." Þú munt sennilega ekki vilja fara aftur í annað sjampó eftir að þú prófar þetta! The Telegraph lýsti vörunni sem: "a revelation" og sjampóið hefur unnið verðlaunin Top Santé Best Buy.

DIET Próteinmáltíð 850 gr.

kr.3.703
Plöntumiðuð prótein máltíð full af nauðsynlegum vítamínum og steinefnum til að halda kroppnum við. Í EINUM SKAMMTI ER AÐ FINNA: KALORÍUR: 249 gr. PRÓTEIN: 29 gr. KOLVETNI: 14,9 gr. FITA: 6,5 gr. VÍTAMÍN: 30% Þú setur 2x skeiðar í vatn eða þína eftirlætis mjólk. *athugið að þessi vara er ekki glútenlaus AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup  Garðabæ og Skeifunni
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Vegickers 60g

kr.490

HANDGERT VEGAN SNICKERS - NEMA BARA SVO MIKLU MIKLU 😋

Fyllingin er dúnmjúk & crunchy með karamellu og jarðhnetum. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi 💛

Acaí duft 500 gr.

kr.5.592
  • 100% hreint acaí berjaduft
  • Náttúrulegt án allra aukaefna
  • Afar ríkt af andoxunarefnum
  • 1 tsk. er fullkomin í smoothie, jógúrt & ofurskál
  • Einnig hægt að nota sem náttúrulegan matarlit
  

Espresso Martini Soy Wax Candle

kr.3.990
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og unaðsleg Espresso Martini Inniheldur endurnýtt kaffi Brennslutími er ca. 35 klst. (180 ml.) Fullkomin umhverfisvæn gjafavara     

Chocolate Ball Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG HEFÐBUNDIN SÆNSK SÚKKULAÐI/KÓKOSKÚLA 😋

Fyllingin er dúnmjúk með dýrindis keim af kaffi og kókos. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi 💛

Hazelnut Truffles Organic 45 g.

kr.693

DÝRINDIS HESLIHNETU TRUFFLUR SEM INNIHALDA ÓRISTAÐ COCOA FRÁ PERÚ OG DASS AF KANIL TIL AÐ SVALA SÆTUÞÖRF.

Handgert ljúfmeti með cocoa frá Perú, agave sýrópi og kasjúhnetum sem allt flokkast undir hráfæði. My Raw Joy passa að áferð og bragð sé á pari við hefðbundið súkkulaði án þess að nota unnin sykur eða annan óþarfa. Þessi dásemdar vara er 100% vegan & lífrænt vottuð! Fullkomið "crunchy" snarl eða jafnvel gjafaviðbót