Skoða körfu “Maldives Mood Conditioner Bar” hefur verið bætt í körfuna.
Sold out
5 daga detox bæklingur
kr.0
5 DAGA DETOX PLANIÐ FRÁ YOUR SUPER ER EITT ÁRANGURSRÍKASTA DETOX PRÓGRAMIÐ Á MARKAÐI Í DAG!
Ástæðan fyrir þessu er að fólk er í rauninni að koma djúphreinsunarferlinu sínu af stað með raunverulegri, hollri og hreinni fæðu án þess að vera svangur eða svöng allan tímann. Með því að borða hreint og næringaríkt og sleppa unnum óþarfa getur þú upplifað flóruna af heilsufarslegum ávinningum á borð við minni uppþembu, minni sykurlöngun, aukið orkustög og heilt yfir betri andleg og líkamleg líðan!
Við hvetjum þig til að skoða e-bókina sem inniheldur 5 daga detox planið frá Your Super og ef þú vilt festa kaup í detox pakkanum þá er hann að finna hér.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Ekki til á lager
Vörunúmer:
YSM1
Flokkar: ALLAR VÖRUR, E-BÆKUR, HEILSUVÖRUR, OFURFÆÐI, YOUR SUPER
Aðrar spennandi vörur
Bambus Rör
Cancún Caress Sjampóstykki
ÞÆR SEM VIÐ EIGUM Á LAGER HAFA ORÐIÐ FYRIR OGGU PONSU HNJASKI OG ERU ÞVÍ Á 30% AFSLÆTTI EN SÉST MJÖG LÍTIÐ Á ÞEIM!
Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ? Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.Kókoshnetuskál
- Framleidd af náttúrunni, handverkuð úr ekta kókoshnetu.
- Hver og ein skál með sína eigin lögun og lit
- Pússuð og borin með kókosolíu
- Best er að handþvo skálarnar
- Einstaklega falleg gjafavara
- Parast vel við barbados skeið
Activated Charcoal duft
kr.1.494 – kr.9.990
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
kr.4.890
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Magic Mushroom Organic 150 gr.
kr.5.090
INNIHALDSEFNI: Cocoa*, Ashwagandha*, Reishi*, Lucuma* og Kanill* (*lífrænt) -> ATH. það er því miður ekki lengur chaga í vörunni 🤎
Magic Mushroom eða streitubaninn eins og við köllum hann, inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem geta hjálpað kroppnum að tækla streitu, bætt einbeitingu og stuðlað að jafnvægi. Cocoa inniheldur síðan mikið magn flavonoids sem getur örvað framleiðslu á ákveðnum boðefnum í heilanum og sleppt út gleðihormónum. Þessi athöfn getur haft bætt skap í för með sér og er því cocoa oft kallað "mood booster".
- Ashwagandha þýðir á latnesku "sleep-inducing" og hefur verið kennt við bætt svefngæði.
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni en sumir telja ashwagandha ekki vera öruggt á meðgöngu.
Fiji Feelin Conditioner Bar
kr.2.290
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.