• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
Tropic Tropic
Login / Register
0 items / kr.0
Menu
Tropic Tropic
0 items / kr.0
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÚÐVÖRUR Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.
Lemongrass Body Scrub with Coffee 200 ml.
Lemongrass Body Scrub with Coffee 200 ml. kr.3.990
Back to products
Hand + Body Wash with Kiwi Water 250ml
Hand + Body Wash with Kiwi Water 250ml kr.3.490

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.5.990

Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn.

Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar.

Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt!

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka

 

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)

Vörunúmer: UC25 Flokkar: ALLAR VÖRUR, GJAFAVARA, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE
  • Lýsing
Lýsing

HRÁEFNI

99% NATURAL INGREDIENTS: Aqua, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Cetearyl Alcohol, Cetearyl Glucoside, Helianthus Annuus Seed Oil*, Rosa Canina (Rosehip) Fruit Oil, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Glycerin, Ricinus Communis (Castor) Seed Oil, Vaccinium Myrtillus (Blueberry) Seed Oil, Niacinamide, Sodium Hyaluronate, Citrus Aurantium Amara (Neroli) Flower Water, Theobroma Cacao Extract, Calendula Officinalis Extract*, Xanthan Gum, Salicylic Acid, Sorbic Acid, Benzyl Alcohol.

UMBÚÐIR

Kremið er í glerkrukku með ál loki. Krukkan kemur í pappa umbúðum og því allar umbúðir 100% endurvinnanlegar.

Aðrar spennandi vörur

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view

Organic Green Spirulina 500g

kr.6.490
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
Setja í körfu
Quick view

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.5.990
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  
Setja í körfu
Quick view

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view

Chai Latte Soy Wax Candle

kr.5.190
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og jólin eða unaðslegt chai latte Brennslutími er 35 klst. (180 ml.) Inniheldur endurnýtt chai-te krydd Fullkomin umhverfisvæn gjafavara  
Setja í körfu
Quick view

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view

Tropic Organic Acaí Powder

kr.2.690 – kr.19.990

LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber. Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.

UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL

1 bolli af blönduðum frosnum berjum 30 ml. plöntuprótein (valkvæmt) 1-2 dl. af plöntumjólk 2 tsk. Tropic acaí duft 1 frosinn banani Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman 🥣 Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur 😋

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði Hagkaup: Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Veldu kosti
Quick view
2022 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.

Sendum allar pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

Shop
0 items Cart
My account