Conditioner Crème with Rosemary Oil + Vitamin E
HÁRNÆRINGIN FRÁ UPCIRCLE PARAST FULLKOMLEGA VIÐ SJAMPÓIÐ FRÁ ÞEIM OG VEITIR ÞÍNU HÁRI DJÚPA NÆRINGU MEÐ HÁGÆÐA HRÁEFNUM
Þessi hárnæring inniheldur náttúruleg hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest! Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur "botanical lipids" sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni. Hárnæringin hentar öllum hártýpum, þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.Hand + Body Wash with Kiwi 50ml
FERSK HAND- OG LÍKAMSSÁPA Í FERÐASTÆRÐ SEM ÞÚ GETUR TEKIÐ MEÐ Í HANDFARANGURINN
Þessi unaðslega hand og líkamssápa inniheldur bólguminnkandi kiwi vatn en einnig sítrónugras- og mandarínuolíu sem gerir það að verkum að sápan þurrkar ekki upp húðina. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt og hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð.Jumbo Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 120ml
VINSÆLA DAGKREMIÐ FRÁ UPCIRCLE ER NÚ FÁANLEGT Í 120 ML. STÆRÐ OG ÞVÍ FULLKOMIÐ FYRIR ÞÁ SEM NOTA KREMIÐ MIKIÐ!
Þetta dagkrem er afar milt og hentar öllum húðtýpum. Það er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð, veitir frábæran raka og nærir húðina með E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem geta hægt á öldrun. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. „Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!“ – einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 20ml
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎Refillable Deodorant with Macadamia + Refill
100% NÁTTÚRULEGUR OG MILDUR SVITALYKTAREYÐIR SEM HELDUR ÞÉR FERSKRI/FERSKUM YFIR DAGINN
Þessi dásamlega nýjung frá UpCircle býr svo vel að vera auðguð með makadamíuolíu sem nærir og veitir raka og gerir það að verkum að handakrikinn helst mjúkur yfir daginn. Svitalyktareyðirinn býr yfir frískandi sítrusilm af bergamot og límónu sem og endurunninni kaktusfíkju sem hefur bólgueyðandi eiginleika og róar húðertingu. Þessi svitalyktareyðir hentar öllum húðtýpum en þá er hann tilvalinn fyrir viðkvæma húð. Svitalyktareyðirinn veitir jafna og langvarandi vörn í allt að 24 klukkustundir. Þessi háþróaða formúla hjá UpCircle er án matarsóda og tryggir virkni án þess að valda ertingu, hvort sem það er á morgunæfingum eða kvöldviðburðum. Þessi náttúrulegi svitalyktareyðir, gerður úr maísmjölsgrunni, tryggir mjúka ásetningu og létta og þægilega áferð.UPCIRCLE LOFORÐIÐ
Þessi svitalyktareyðir dregur úr umhverfisáhrifum með því að nota 100% endurvinnanlegar umbúðir úr áli, auk þess sem hver áfyllingarhylki eru gerð úr 100% niðurbrjótanlegu pappaefni.Peptide Serum with Custard Apple + Blood Orange
NÝSTÁRLEGT ÞRÍPEPTÍÐ SERUM HANNAÐ TIL AÐ ÖRVA KOLLAGENFRAMLEIÐSLU, DRAGA ÚR HRUKKUM OG VINNA GEGN ÖLDRUN HÚÐARINNAR
Formúlan inniheldur hátt hlutfall af níasínamíði (B3) sem jafnar húðlit og veitir raka fyrir mýkri og heilbrigðara yfirbragð húðarinnar. Eins og alltaf er þessi vara frá UpCircle Beauty vegan, ekki prófuð á dýrum, í 100% endurvinnanlegum umbúðum og handgerð í Bretlandi. 93% náttúruleg formúla. Peptíðserum UpCircle bætir virkni annarra húðvara svo þú færð betri árangur úr allri húðrútínunni þinni. Serumið inniheldur endurnýtt rjómaepladuft sem býr yfir frábærri virkni en stuðlar meðal annars að jafnvægi í húðinni og dregur úr bólgum. Serumið inniheldur einnig endurnýtt blóðappelsínuþykkni sem verndar húðina gegn óhreinindum og öðrum mengandi þáttum í síbreytilegu umhverfi okkar.Eau De Parfum Santelle
SANTELLE ER FÁGAÐUR ILMUR SEM BÝR YFIR MÝKT OG HLÝLEIKA. AF REYNSLUNNI FÆR ÞESSI ILMUR FÆR FÓLK Í KRINGUM ÞIG TIL AÐ SPYRJA ÚT Í HANN 🤍
Top Notes Zesty and piquant black pepper with the delicate sweetness of pear and cassis. Heart Notes A rich heart of creamy sandalwood, made luminous with pink pepper and peony. Base Notes Soft and woody Atlas cedarwood with the caramel warmth of immortelle. We've upcycled... Clove Leaf - Spicy, woody and aromatic clove leaf essential oil is sourced from the Molucca islands of Indonesia. The buds of the tree are used for the food and fragrance industries, whereas leaves and stems are left behind. The salvaged leaves are distilled into this opulent oil that brings a complex and smoky depth to Santelle. Orange Peel - Sweet and uplifting, with the characteristic freshness of peeling an orange. Produced in South American countries for the juice and food industries, the orange essential oil is cold-pressed from peels that would typically be discarded. Orange weaves into the scent confidently, elevating it with a squeeze of zesty vibrance. SANTELLE er 100% án phthalates & parabena.Eau De Parfum Flaura
FLAURA ILMURINN UMLYKUR ÞIG MEÐ BLÓMKENNDUM FERSKLEIKA & SKAPAR UPPLÍFGANDI JÁKVÆÐA ORKU 💐
Top Notes Fresh, sparkling and uplifting bergamot with the juicy sweetness of blackcurrant. Heart Notes A floral aura from honeyed petals of orange blossom, green jasmine sambac and peachy tuberose. Base Notes A radiant base of Virginia cedarwood, velvety vanilla pods and warm fluffy musks. We've upcycled... Jasmine Sambac Green, floral, bright and blooming, jasmine sambac is grown in Tamil Nadu for use in bridal and ceremonial wear. Blossoms of these sacred flowers that remain unsold from markets are rescued and transformed into floral absolute for use in perfumery. It brings warm, blossoming sensuality to Flaura. Cinnamon Bark Spicy and peppery with a blush of vanilla, Sri Lankan cinnamon is heralded as the finest in the world. Sun-warmed cinnamon bark curls into quills on drying, but less uniform rolls are left behind. The spice market’s loss is our gain as these imperfect quills are distilled into a sweet, woody oil that exudes sophistication and elegance. FLAURA er 100% án phthalates & parabena.Cleansing Face Milk with Oat Powder 50ml
Hversdags andlitshreinsir með aloe vera og fíngerðu dufti úr höfrum sem róar húðina og skilur hana eftir hreina og endurnærða.
Hreinsimjólkin er mild og hefur þann eiginleika að geta bætt húðina og endurheimt rakahindrun hennar þökk sé höfrunum en þeir eru aukaafurð úr drykkja- og matvælaframleiðslu.
Formúlan er fíngerð og kremkennd og veitir húðinni virkilega góðan raka. Mjólkin hentar öllum húðtýpum og það er nánast öruggt að húðin verður silkimjúk eftir notkun!
„This is an immediate fave of mine! It’s smooth and silky to apply, it effectively removes makeup and smells lovely. Only one or two pumps is needed so lasts a while. Doesn’t leave skin feeling tight and is suitable for sensitive skin!“
Húðfræðingar hafa samþykkt þessa vöru fyrir viðkvæma húð sem og að þessa vöru má nota á börn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11