Sýna 1–9 af 21 niðurstaða

Fjölnota Rakvélar

kr.4.490
Þetta er sennilega síðasta rakvélin sem þú þarft að kaupa! Þú sparar töluvert til lengri tíma og jörðin auðvitað líka. Rakvélin kemur í kraft pappír öskju og henni fylgja með 5 rakvélablöð en eitt blað dugir í 5-8 skipti, jafnvel fleiri. Áfylling af blöðum er hægt að versla hér. Ath. að vörumyndin er rose gold en því miður er hún búin á lager. Við eigum bara royal golden sem er aðeins gylltari :)

Rakvélablöð 10 stk.

kr.890

Hágæða rakvélablöð úr ryðfríu stáli
Fullkomnar í fjölnota rakvélarnar 
Koma 10x saman í pakka

Face Serum with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.3.590
Lífrænt margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum! Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Samþykkt af húðlæknum
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa notað þetta serum sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þú getur sett serumið á rakakrem sem bindur rakann betur í búðinni. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.4.890

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð eins og hefur komið fram. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka        

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.3.290
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11  

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.4.990
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem hentar nær öllum húðtýpum. Kremið sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúla kremsins er rík af níasínamíði sem jafnar húðlit, hyaluronic sýru sem gefur raka og rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkni. Þykknið er ríkt af A vítamíni sem ver húðina gegn útfjólubláum geislum og er uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á næturkrem sem er engu líkt! ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11        

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.4.890
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka