Showing all 29 results

Mjúkir Bamburstar

kr.0
Mjúkir bambus tannburstar 100% vegan og niðurbrjótanlegir Hár eru bylgjulaga og unnin úr laxerolíu Skaftið er hringlaga úr lífrænum bambus Góð burstun án þess að meiða viðkvæmt tannhold FDA samþykkir og með ISO 14001 & 9001 vottanir Mikilvægt að láta tannburstann ekki liggja lengi í bleyti. 

Miðlungs Bamburstar

kr.0
Miðlungs bamburstarnir frá Tropic eru með bambus skafti og miðlungs stífum hárum búin til úr bambus efni og nylon. Umbúðirnar eru gerðar úr 100% endurunnum pappír. Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og því getur skipt sköpum fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr náttúrulegu efni sem brotnar niður í náttúrunni frekar en tannbursta sem er búinn til úr plasti og getur tekið allt að þúsund ár að brotna niður og jafnvel eftir þann tíma lifa skaðleg efni úr plastinu áfram í enn lengri tíma í umhverfinu. Bambus er líka þekkt fyrir þann eiginleika að bakteríur þrífast ekki vel í því: “Another advantage of bamboo is that it is naturally antimicrobial. There’s a reason cutting boards and kitchen utensils are made out of wood and bamboo. Unlike plastic, properties inside the bamboo kill bacteria that penetrate it’s surface, providing long-lasting protection against harmful bacteria.” Ef þú kýst heldur mjúk hár í tannburstun þá mælum við með Mjúkur Bambus Tannbursti.

Blá Spirulína

kr.2.093kr.16.990
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt. ✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer! Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn. Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram

JÓLA OFURSKÁL 🎄 

  • Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
  • 1-2 tsk. af blárri spirulínu
  • dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
  • 2 msk. af jógúrti
  • 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
  • 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
  • 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Allt er blandað saman í öflugum blandara eða matvinnsluvél. Athugið að þar sem unnið er með mikið frosið hráefni þá gæti þurft að stoppa inn á milli og hræra með skeið eða jafnvel bæta smá meiri vökva. Toppaðu skálina með því sem þig girnist en við mælum með piparköku crumble eða jafnvel bókhveiti granóla til að lauma enn fleiri næringarefnum að! Þessi bláa ofurskál slær líka rækilega í gegn hjá flestum aldurshópum: sjá hér en fleiri uppskriftir má síðan finna hér. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni

Curcumin 50 gr.

kr.1.196

100% HREINT KÚRKÚMÍN DUFT SEM ER VIRKA EFNIÐ Í TÚRMERIK 💛

Þetta krydd eða ofurjurt eins og við köllum hana, hefur verið notuð í ayurveda og aðrar náttúrulækningar í þúsundir ára. Kúrkúmín hefur sterka andoxunareiginleika sem getur haft jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Kryddið er þekkt fyrir að geta dregið úr krónískum bólgum í líkamanum sem er mikilvægt til að vinna gegn krónískum sjúkdómum. Eins hefur kúrkúmín hjálpað mörgum sem eru að glíma við liðagigt með því að draga úr verkjum og stífleika í liðunum. Heilsufarslegur ávinningur kúrkúmín er talinn tengja við heilaheilsu, sjónheilsu og nýrnaheilsu. Athugið að eitt og sér getur líkaminn átt erfitt með upptöku andoxunarefnanna í kúrkúmín en ef þú setur smá svartan pipar á móti, þá eykur það upptökuna og ávinning sömuleiðis um allt að 2000%.

ÞÚ SETUR EINFALDLEGA 1 TSK. Í FLÓAÐA MJÓLK, VATN, ÞEYTING, BAKSTURINN, GRAUTINN, JÓGÚRTIÐ EÐA HVAÐ SEM ER.

DUFTIÐ GEFUR FALLEGAN GULAN LIT OG GETUR VIRKAÐ SEM NÁTTÚRULEGUR MATARLITUR.

 

Activated Charcoal duft

kr.1.743kr.7.992
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT. Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
  • 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
  • Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
  • Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
  • Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar   hér.
  • Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis   hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Kringlu, Smáralind, Skeifu, Garðabæ, Spöng, Akureyri og Eiðistorg Athugið að ekki ráðlagt að innbyrða lyf nema nokkrum klst. fyrir eða eftir inntöku á Activated Charcoal svo það hafi ekki áhrif á virkni lyfsins. Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur ein teskeið eða 5 gr. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

Pink Latte Pakkinn

kr.8.654
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu. Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.

INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:

  • Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
  • Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
  • Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance

UPPSKRIFT AF MOON MILK

  • 1 tsk. Moon Balance
  • 1 tsk. Plant Collagen
  • 1 bolli plöntumjólk
  • 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Allt hitað í potti og flóað með Your Super mjólkurflóara, síðan borið fram í þínum uppáhalds bolla!

Fiji Feels Combo

kr.2.588
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar! Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Fiji Feels sjampóstykki

kr.1.393
  • Náttúrulegt hársápustykki sem mýkir hárið og nærir
  • Ilmar af kryddaðri vanillu og sætum kókos
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Án SLS og án parabena
  • Handgert í USA
Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!

OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.

kr.245kr.4.392
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,4 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Your Super Krús

kr.445
Það er fátt betra en hvetjandi krús
  • 325 ml. að stærð eða 11 oz.
  • má þvo í uppþvottavél
  • 100% keramik

Choco Bar Organic with Banana 30 g.

kr.345
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur bananafyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Acaí duft 60 gr.

kr.1.752

HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!) Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.

Almond Choco Marbles Organic 50 g.

kr.552
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar möndlur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri.  AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

OrangeFit Banana Prótein – 25 gr.

kr.245
Virkilega bragðgott banana prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,9 gr. Kolvetni: 1,8 gr. Fita: 2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Mumbai Mood Hárnæringarstykki

kr.1.393
Mumbai Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Mumbai Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Moon Goo Svitalyktareyðir

kr.2.152

ÁHRIFARÍKUR OG NÁTTÚRULEGUR SVITALYKTAREYÐIR SEM HENTAR FLESTUM 😊

Hressandi og upplífgandi mildur ilmur af lavander og sítrónugrasið frá ilmkjarnaolíum og hefur svitalyktareyðirinn rjómakennda áferð sem auðvelt er að dreifa. Hann er líka án allra óæskilegra efna á borð við ál, parabena, alkóhóls og jarðolíu. MOON GOO INNIHELDUR HINSVEGAR CERA ALBA EÐA BÝFLUGNAVAX OG ER ÞVÍ EIN AF ÞEIM FÁU VÖRUM SEM ER EKKI 100% VEGAN HJÁ OKKUR.     

OrangeFit Mangó Prótein – 25 gr.

kr.245
VIÐ EIGUM ÞVÍ MIÐUR BARA 25 GR. EINS OG ER EN 750 GR. PAKKNINGAR ERU VÆNTANLEGAR. Virkilega bragðgott mangó prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,3 gr. Kolvetni: 2,3 gr. Fita: 2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Space Cat Svitalyktareyðir

kr.2.152
  • Byltingarkenndur og náttúrulegur svitalyktareyðir með góðgerlum
  • Styðja við góðar bakteríur og stjórna þeim sem lykta illa
  • Hentar frábærlega fyrir alla (viðkvæma líka)
  • Hentar fullorðnum sem og unglingum
  • Ilmar af ferskri vanillu og myntu
  • Án: Bicorbonate of soda (sóda), áls, alkohóls, petrolium vara, parabena og dýraafurða þannig 100% VEGAN.
     

Cacao Lover Organic 200 g.

kr.1.947
Hrátt kakó frá Perú er þekkt fyrir mikið magn andoxunarefna og að geta bætt skapið. Í þessari dýrindis kakó blöndu frá My Raw Joy getur þú öðlast þann ávinning ásamt því að innbyrða mikið magn næringarefna!
  • Hráfæði, vegan & lífrænt
  • Mjög ríkt af trefjum!
  • 0% aukaefni

Cancún Caress Hárnæringarstykki

kr.1.493
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Fiji Feels hárnæringarstykki

kr.1.393
  • Náttúrulegt hárnæringarstykki sem mýkir hárið
  • Ilmar af kryddaðri vanillu og sætum kókos
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Án SLS og án parabena
  • Handgert í USA
Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!

Star Cloud Svitalyktareyðir

kr.2.152
  • Byltingarkenndur og náttúrulegur svitalyktareyðir með góðgerlum
  • Styðja við góðar bakteríur og stjórna þeim sem lykta illa
  • Án ilms og ilmkjarnaolía og því fullkominn fyrir viðkvæma
  • Hentar fullorðnum sem og unglingum
  • Án: Bicorbonate of soda (sóda), áls, alkohóls, petrolium vara, parabena og dýraafurða og er því 100% VEGAN.
     

Koffín húðtvenna

kr.3.992
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi. Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin! Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting! Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina. ÁFYLLING: áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11   

Rawnice Prufupakki

kr.6.993

LITRÍKI OG SKEMMTILEGI PRUFUPAKKINN FRÁ RAWNICE ER ÓMISSANDI Í ELDAMENNSKUNA & BAKSTURINN!

RAWNICE PAKKINN INNIHELDUR: PINK - Pink Pitaya Powder 20g BLUE - Blue Spirulina Powder 10g INDIGO - Butterfly Pea Powder 20g BLACK - Activated Charcoal 10g GREEN - Matcha Powder 20g YELLOW - Curcumin Powder 10g

Day + Night Hydration Set

kr.6.792

DÁSAMLEGT SETT SEM VEITIR RAKA OG NÆRIR HÚÐINA. TILVALIÐ FYRIR ÞÍNA HÚÐRÚTÍNU!

SETTIÐ INNIHELDUR EFTIRFARANDI VÖRUR:
  • Lífrænt andlitsserum með kaffiolíu frá UpCircle (30 ml.) Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn- og rosehip olíu. Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Notaðu serumið á morgnana eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Rakakrem með E-vítamíni og argan skeljum (60 ml.) kremið er ríkt af andoxunarefnum og hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Kremið inniheldur kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
  • Næturkrem með hýalúrónsýru og niacinamide (B3 vítamín) (55 ml.) milt og ilmefnalaust sem hentar öllum húðtýpum. Kremið sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuladðan svefn.
Þetta sett er fullkomin gjafavara

UPCIRCLE LOFORÐIÐ

100% endurvinnanlegar umbúðir og allar vörur eru framleiddar á siðferðislegan máta án pálmolíu, parabens, phthalates, sílíkon, steinefnaolíu og parfum. Þessar vöru eru náttúrulegar, umhverfisvænar, vegan og án ofbeldis. ÁFYLLING: fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11 

Baðsalt með Epsom og Himalaya Salti

kr.2.792
These beautifully scented bath salts feature luxurious natural salts and aromatic botanicals to help calm the mind and relax the body. Upcycled rose petals provide an uplifting floral scent, whilst the combination of lavender and geranium oil grounds the senses. Whilst you unwind and relax, the bath salts get to work. Each jar is brimming with upcycled rose petals and contains a trio of natural salts. The three natural salts include muscle-relaxing Epsom salt, breakout-busting sea salt and anti-pollutant Himalayan pink salt. Reused, repurposed, reloved: These bath salts are made with upcycled rose petals to inspire relaxation and to invigorate the senses.   The UpCircle Promise Natural, sustainable, vegan & cruelty-free. Housed in 100% plastic-free, refillable packaging.

Vegan Hair Care Duo

kr.5.990

SPARAÐU 20% OG NÆLDU ÞÉR Í ÞESSA ÖFLUGU HÁRTVENNU FRÁ UPCIRCLE SEM INNIHELDUR SJAMPÓIÐ OG HÁRNÆRINGUNA ÞEIRRA

SJAMPÓ CRÉME: 100% náttúrulegt sjampó með hágæða endurnýttum hráefnum. Þessi nýstárlega og vandaða formúla skilar miklu árangri strax en einn þvottur er á við þrjá þvotta með hefðbundnu sjampói. Formúlan er auðvitað án sílíkons og súlfata. „I’m an ex senior hairstylist of 12 years. When I blow dried and straightened my hair after using this, I was blown away.“ Þú munt sennilega ekki vilja fara aftur í annað sjampó eftir að þú prófar þetta! The Telegraph lýsti vörunni sem: „a revelation“ og sjampóið hefur unnið verðlaunin Top Santé Best Buy. CONDITIONER CRÉME: þessi hárnæring inniheldur hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar hárið og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest! Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur „botanical lipids“ sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni. Báðar vörurnar henta öllum hártýpum; þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.

Cleanse, Tone + Moisturise Set

kr.11.400

FULLKOMIÐ GJAFASETT SEM INNIHELDUR ÞRJÁR VINSÆLAR HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FRÁ ELSKU UPCIRCLE

RAKAKREM MEÐ ARGAN SKELJUM: Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem er okkar vinsælasta UpCircle vara en kremið veitir húðinni góðan raka og nærir hana einstaklega vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg sérstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af E-vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. HREINSIBALM MEÐ APRÍKÓSU: er virkilega árangursríkt, nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Við mælum með þessm vörum af heilum hug en þær eru framleiddar á sjálfbæran máta í UK með 99-100% náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

The Festive Trio

kr.2.245
THE FESTIVE TRIO frá UpCircle er skemmtileg gjöf sem inniheldur: • Róandi líkamsolíu sem inniheldur endurnýtta ástaraldinolíu • Endurlífgandi heimilis ilm sprey með endurnýttum greipaldin safa • Andoxandi varasalvi með endurnýttri hampfræolíu Varasalvinn frá Upcircle nærir og mýkir varirnar ásamt því að veita þeim góðan raka. Varasalvinn inniheldur endurnýtta hampfræolíu, shea smjör, róstinda- og greipaldin olíu. Þessi varasalvi er skyldueign yfir vetrartímann. Heimilis ilmspreyið ("home mist") býr yfir dásamlegum ilm af sítrónugrasi, greipaldin og lavander. Þú þarft bara nokkur sprey til að rýmið verði að sannkölluðu "winter wonderland". Líkamsolían býr yfir frískandi blöndu af ástaraldin-, mandarínu og kumquat olíum sem dragast hratt inn í húðina og næra hana vel. Þú verður ekki öll/allur olíukendur við notkun á þessari líkamsolíu og lyktin sem hún skilur eftir sig er algjör unaður!