Sýna 25–36 af 58 niðurstöður

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.4.990
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka

Peppermint Body Scrub with Coffee 200 ml.

kr.3.490
Náttúrulegur líkamsskrúbbur sem hreinsar dauðar húðfrumur Gerir húðina mjúka, slétta og endurnærðari Örvar húðina með piparmyntu og tröllatrésolíu Skrúbburinn er unninn úr endurnýttu kaffibaunakorgi frá kaffihúsum í London Framleiddur í UK

Cancún Caress Hárnæringarstykki

kr.995
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Hyams Heaven Sjampóstykki

kr.995
  • Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
  • Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Inniheldur einungis 5 hráefni
  • Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
  • Handgert í USA

Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!


Your Super bæklingur

kr.0

ÚTPRENTAÐUR YOUR SUPER BÆKLINGUR MEÐ FRÓÐLEIK & NÆRINGARRÍKUM UPPSKRIFTUM

Þessi bæklingur er frábær kynning á vörunum frá Your Super sem hafa verið að bæta lífsgæði á heimsvísu með sínum dásamlegu lífrænu ofurblöndum 🌿 Þú finnur meðal annars smoothie uppskriftir og heita drykki sem geta aukið orkustig, bætt svefngæði og dregið úr sykurlöngun svo eitthvað sé nefnt! Við mælum einnig með því að þú grípir 5 daga detox prógramið útprentað og kynnir þér það nánar.

Tropic Vanilla Protein 500g

kr.3.690

TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI 🌴

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við sucralose og acesulfam-K 🚫 Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan 🤍

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

KRÓNAN Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. (ath. varan er nýkomin í sölu & gæti tekið smá stund að koma í hillurnar 🤎) HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri (ath. varan er nýkomin í sölu & gæti tekið smá stund að koma í hillurnar 🤎)

Greens 300 gr.

kr.3.244
Byrjaðu daginn á grænum safa með því að setja eina skeið af Greens frá OrangeFit í vatn til að fá 24 tegundir af mismunandi ávöxtum og grænmeti. Þá uppfyllir þú strax 30% af þínum ráðlagða vítamín dagskammti en Greens er sneisafullt af trefjum og andoxunarefnum. Ef þér finnst Greens ekki gott eitt og sér í vatnsglas, þá er ekkert mál að skella einni skeið í jógúrtið eða þeytinginn.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 skeiðar. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.4.490
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  

Vegickers 60g

kr.490

HANDGERT VEGAN SNICKERS - NEMA BARA SVO MIKLU MIKLU 😋

Fyllingin er dúnmjúk & crunchy með karamellu og jarðhnetum. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi 💛

Rawnice Hristibrúsi

kr.1.100

MÖGULEGA FALLEGASTI HRISTIBRÚSINN Á MARKAÐI Í DAG.

Ekki láta þennan grip vanta með þér á æfinguna eða hvert sem er til að blanda þér dýrindis próteindrykk.
SMÁATRIÐIN: LENGD: 16 cm RÚMMÁL: 500 ml/ 16 fl oz EFNI: BPA- free plast

Tropic Chocolate Protein 500g

kr.3.690

LJÚFFENGT PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ SÚKKULAÐI BRAGÐI 🌴

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina “rjómakennda” sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K 🚫 Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan 🤍

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri (ath. varan er nýkomin í sölu & gæti tekið smá stund að koma í hillurnar 🤎)

HERO Vanillubragð

kr.2.994
Ertu að leita þér af næringarríkum og fljótlegum morgunverðardrykk? HERO vanilludrykkurinn frá Orange Fit er fljótleg og bragðgóð morgunverðarmáltíð fyrir fólk sem vill ná inn mikilvægum næringarefnum í upphaf dags til að tækla verkefnin framundan. Þú setur einfaldlega 4-6 skeiðar í vatn eða þína eftirlætis mjólk. Þessi plöntumiðaði morgunverðardrykkur frá OrangeFit inniheldur einungis raunverulegt fæði, engan tilbúning og engann viðbættan sykur né önnur óþarfa aukaefni. Máltíðin inniheldur til dæmis prótein, omega-3 fitusýrur og trefjar. Þó svo að við köllum þetta morgunverðardrykk að þá er þér velkomið að fá þér hann í hádeginu eða á öðrum tímapunkti yfir daginn. Ein máltíð inniheldur: Kaloríur: 411 Prótein: 30 gr. Kolvetni: 47,2 gr. Fita: 11,5 gr. Trefjar: 6 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.