Vissir þú að í allri Evrópu eru notuð 23 milljón plaströr á hverjum degi – og mörg þessara plaströra enda í sjónum okkar eða víðsvegar um strendur okkar? Kveðjum plaströrin endalega með því að skipta þeim út fyrir þessi fallegu fjölnota bambus rös!
Rörin eru handunnin í Víetnam úr lífrænum bambus án allra skaðlegra efna. Bambus rörin eru einnig niðurbrjótanleg og náttúrulega bakteríufælandi.
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
INNIHALDSEFNI: Baobab*, Hibiscus*, Shatavari*, Amla*, Rauðrófa* og Maca* (*lífrænt)
Moon Balance var hannað fyrir konur og hormónastarsfemi þeirra af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna. Þrátt fyrir að hafa verið hannað fyrir femme cycle, að þá er þessi blanda líka frábær fyrir karlmenn!
Ayurveda jurtir og aðlögunarefni einkenna þessa ofurblöndu sem getur gert kroppnum svo mikið gott. Prófaðu að setja 1-2 tsk. í vatn, plöntumjólk, smoothie eða hvað sem þig girnist fyrir næringarefni og ávinninga.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu
Lyfja• Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ
ATHUGIÐ: Ekki er ráðlagt að neyta hibiscus á meðgöngu né þegar þú ert með barn á brjósti.
Við kaup á þessari vöru færðu niðurhalanlega e-bók með Moon Balance fróðleik og uppskriftum!
Cancún Caress hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum límónu og kókos ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Náttúrulegt hárnæringarstykki sem nærir og mýkir hárið
Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
Án SLS, parabena og annara skaðlegra efna
Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
Handgert í USA
Passið að hafa hárnæringuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!
ÞÆR SEM VIÐ EIGUM Á LAGER HAFA ORÐIÐ FYRIR OGGU PONSU HNJASKI OG ERU ÞVÍ Á 30% AFSLÆTTI EN SÉST MJÖG LÍTIÐ Á ÞEIM!
Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ?
Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
5 DAGA HREINSUNIN FRÁ YOUR SUPER ER EIN ÁRANGURSRÍKASTA HREINSUNIN Á MARKAÐI Í DAG!
Nú er þessi öfluga hreinsun CITRUS LAB TESTED eða klínískt vottuð en það má lesa nánar um vottunina og niðurstöður rannsóknarinnar HÉR.
5 daga detox planið var hannað af reyndum næringarfræðingum ásamt Kristel, meðeiganda Your Super en það einkennist af þremur plöntumiðuðum máltíðum yfir daginn. Grænn smoothie í morgunmat, plöntumiðuð máltíð í hádegismat og berja smoothie í kvöldmat. Þú mátt einnig gæla þér á detox samþykktu snarli inn á milli.
86% þeirra sem gáfu endurgjöf tilkynntu bætta heilsu og betri líðan eftir hreinsunina. Þú HREINlega verður að prófa!