- Við biðjumst innilegrar afsökunar, en það er ekki hægt að kaupa þessa vöru.
Sold out
Acaí duft 500 gr.
kr.6.990 kr.5.592
Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.
kr.4.890 kr.3.912
Soap Travel Tin
kr.1.890
Ferðabox til að taka sápustykkin með í ferðalagið, ræktina eða sund. Það er því miður ekki hægt að setja bæði sjampó- og hárnæringarstykkin frá Tropic saman ofan í eitt box en hægt er að kaupa tvö box ef maður vill og geyma í sitthvoru.
Athugið að sum sjampóstykki hjá okkur eru aðeins of stór fyrir boxið en eftir nokkra hárþvotta ætti það að komast!
Passið að láta sápustykkin ekki liggja of lengi í bleyti, gott er að taka millistykkið úr boxinu og láta renna af sápunum 😊
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Ekki til á lager
Vörunúmer:
UC37
Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÁRVÖRUR, HÚÐVÖRUR
Aðrar spennandi vörur
Fiji Feelin Shampoo Bar
- Náttúrulegt hársápustykki sem mýkir hárið og nærir
- Ilmar af kryddaðri vanillu og sætum kókos
- Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
- Án SLS og án parabena
- Handgert í USA
Magic Mushroom Organic 150 gr.
kr.5.090
INNIHALDSEFNI: Cocoa*, Ashwagandha*, Reishi*, Lucuma* og Kanill* (*lífrænt) -> ATH. það er því miður ekki lengur chaga í vörunni 🤎
Magic Mushroom eða streitubaninn eins og við köllum hann, inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem geta hjálpað kroppnum að tækla streitu, bætt einbeitingu og stuðlað að jafnvægi. Cocoa inniheldur síðan mikið magn flavonoids sem getur örvað framleiðslu á ákveðnum boðefnum í heilanum og sleppt út gleðihormónum. Þessi athöfn getur haft bætt skap í för með sér og er því cocoa oft kallað "mood booster".
- Ashwagandha þýðir á latnesku "sleep-inducing" og hefur verið kennt við bætt svefngæði.
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni en sumir telja ashwagandha ekki vera öruggt á meðgöngu.
Super Green Organic 150 gr.
8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU
INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt) Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.- Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
- Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Golden Mellow Organic 200 gr.
80% AFSLÁTTUR SÖKUM STIMPILS (31.03.24) EN Í FÍNU LAGI MEÐ HRÁEFNIÐ EFTIR ÞANN TÍMA!
INNIHALDSEFNI: Túrmerik*, ashwagandha*, engifer*, kanill*, lucuma* og kókosmjólk* (*lífrænt) Golden Mellow er fullkomið fyrir dýrindis túrmerik bolla sem inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni. Þú setur einfaldlega 1. tsk. í heita eða kalda (plöntu)mjólk og síðan er sætugjafi valkvæmur. Þú getur einnig sett Golden Mellow í jógúrt, graut, þeyting eða í vatn. FRÆÐIN: Ashwagandha (Withania Somnifera) er talin ein af mikilvægustu jurtunum í Ayurveda (the traditional system of medicine in India) en hún hlýtur þann titil fyrir að vera kennd við slökun og svefngæði. Somnifera þýðir einmitt á latnesku "sleep-inducing". Virka efnið í svörtum pipar (piperine) er talið geta aukið upptöku andoxunarefna í líkamanum en þau lífrænu hráefni sem eru í Golden Mellow eru einmitt rík af andoxunarefnum! Við hvetjum þig því til að bæta við smá svörtum pipar út í drykkinn eða það sem þú matreiðir með Golden Mellow. Við kaup á þessari vöru hefur þú kost á að hlaða niður e-bók með fróðleik og dýrindis uppskriftum til að styðjast við. Gyllt mjólk fyrir 1 bolla Hráefni: - 1-2 tsk Golden Mellow - 250ml plöntumjólk (t.d. barista) - 1 tsk. hlynsýróp (valkvæmt) Aðferð: 1. Hitaðu mjólkina í litlum potti eða notaðu flóara 2. Blandaðu Golden Mellow við mjólkina en við mælum með mjólkurflóara 3. Njóttu í þínum uppáhalds bolla! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu Lyfja • Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni.
Bambus Rör
Detox Pakkinn
5 DAGA HREINSUNIN FRÁ YOUR SUPER ER EIN ÁRANGURSRÍKASTA HREINSUNIN Á MARKAÐI Í DAG!
Nú er þessi öfluga hreinsun CITRUS LAB TESTED eða klínískt vottuð en það má lesa nánar um vottunina og niðurstöður rannsóknarinnar HÉR. 5 daga detox planið var hannað af reyndum næringarfræðingum ásamt Kristel, meðeiganda Your Super en það einkennist af þremur plöntumiðuðum máltíðum yfir daginn. Grænn smoothie í morgunmat, plöntumiðuð máltíð í hádegismat og berja smoothie í kvöldmat. Þú mátt einnig gæla þér á detox samþykktu snarli inn á milli. 86% þeirra sem gáfu endurgjöf tilkynntu bætta heilsu og betri líðan eftir hreinsunina. Þú HREINlega verður að prófa!DETOX PAKKINN INNIHELDUR:
Skinny Protein 400 gr. Golden Mellow 200 gr. Super Green 200 gr. Forever Beautiful 200 gr. Gut Feeling 150 gr. Tvö 5 daga detox bæklinga (einnig niðurhalanlegt hér.) e-bók með dýrindis smoothie uppskrift Athugið að til þess að fylgja planinu eftir þarf einnig að gera matarinnkaup en hugmynd af innkaupalista fylgir detox planinu!Cancún Caress Combo
Cancún Caress hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum límónu og kókos ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.