Skoða körfu “Cancún Caress Hárnæringarstykki” hefur verið bætt í körfuna.
Rawnice Milk Frother
kr.3.290
FLÓARI DRAUMA OKKAR
Við kynnum Rawnice mjólkurflóarann. Hann er mattur með fallegri bleikri og fjólublárri litasamsetningu og algjör gæðavara sem umbreytir drykkjunum í flóaða fegurð .
Með „non-slip“ gripi og öfluga virkni hefur mælum við 110% með þessum flóara .
*Ath. batterí eru ekki innifalin & hann má ekki setja í uppþvottavél, nóg að handþvo hann eftir hverja notkun*
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Á lager
Vörunúmer:
RAWA2
Flokkar: ALLAR VÖRUR, AUKAHLUTIR, GJAFAVARA, RAWNICE
Aðrar spennandi vörur
Chai Latte Soy Wax Candle
Fiji Feelin Conditioner Bar
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Cancún Caress Combo
Cancún Caress hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum límónu og kókos ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
Golden Mellow Organic 200 gr.
INNIHALDSEFNI: Túrmerik*, ashwagandha*, engifer*, kanill*, lucuma* og kókosmjólk* (*lífrænt)
Golden Mellow er fullkomið fyrir dýrindis túrmerik bolla sem inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni. Þú setur einfaldlega 1. tsk. í heita eða kalda (plöntu)mjólk og síðan er sætugjafi valkvæmur. Þú getur einnig sett Golden Mellow í jógúrt, graut, þeyting eða í vatn.
FRÆÐIN: Ashwagandha (Withania Somnifera) er talin ein af mikilvægustu jurtunum í Ayurveda (the traditional system of medicine in India) en hún hlýtur þann titil fyrir að vera kennd við slökun og svefngæði. Somnifera þýðir einmitt á latnesku "sleep-inducing".
Virka efnið í svörtum pipar (piperine) er talið geta aukið upptöku andoxunarefna í líkamanum en þau lífrænu hráefni sem eru í Golden Mellow eru einmitt rík af andoxunarefnum! Við hvetjum þig því til að bæta við smá svörtum pipar út í drykkinn eða það sem þú matreiðir með Golden Mellow.
Við kaup á þessari vöru hefur þú kost á að hlaða niður e-bók með fróðleik og dýrindis uppskriftum til að styðjast við.
Gyllt mjólk fyrir 1 bolla
Hráefni:
- 1-2 tsk Golden Mellow
- 250ml plöntumjólk (t.d. barista)
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvæmt)
Aðferð:
1. Hitaðu mjólkina í litlum potti eða notaðu flóara
2. Blandaðu Golden Mellow við mjólkina en við mælum með mjólkurflóara
3. Njóttu í þínum uppáhalds bolla!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu
Lyfja • Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni.
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Cancún Caress Sjampóstykki
ÞÆR SEM VIÐ EIGUM Á LAGER HAFA ORÐIÐ FYRIR OGGU PONSU HNJASKI OG ERU ÞVÍ Á 30% AFSLÆTTI EN SÉST MJÖG LÍTIÐ Á ÞEIM!
Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ? Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.Energy Bomb Organic 200 gr.
INNIHALDSEFNI: Acaí*, Guarana*, Lucuma*, Maca* og Banani* (*lífrænt)
Vertu óstöðvandi með þessum náttúrulega orkugjafa sem inniheldur 39 mg. af koffíni í hverjum skammti (5 gr.). Orkan sem þú færð er langvarandi í allt að 8 klst. og án koffínfalls!
- Energy Bomb er ríkt af andoxunarefnum (ORAC 16500 μmol TE)