Energy Bomb Organic 200 gr.
INNIHALDSEFNI: Acaí*, Guarana*, Lucuma*, Maca* og Banani* (*lífrænt)
Vertu óstöðvandi með þessum náttúrulega orkugjafa sem inniheldur 39 mg. af koffíni í hverjum skammti (5 gr.). Orkan sem þú færð er langvarandi í allt að 8 klst. og án koffínfalls!
- Energy Bomb er ríkt af andoxunarefnum (ORAC 16500 μmol TE)
Skinny Protein Organic 400 gr.
INNIHALDSEFNI: Hemp Prótein*, Baunaprótein*, Spirulína*, Alfalfa* og Moringa* (*lífrænt)
Skinny Protein er 62% hágæða prótein sem er auðvelt til upptöku í líkamanum og 38% öflugar grænfæður sem innihalda mikilvæg vítamín og steinefni.
- Skinny Protein býr svo vel að innihalda allar nauðsynlegu amínósýrurnar.
Matcha duft
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice.
Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te.
Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.
MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:
• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.Plant Protein 400 gr.
INNIHALDSEFNI: Baunaprótein* (Spánn), Rísprótein* (Spánn), Maca* (Perú), Lucuma* (Perú) og Banani* (Perú). *lífrænt vottað
Plant Protein er hreint auðmeltanlegt plöntuprótein sem inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og 9 gr. af próteini í hverjum skammti (15 gr.)
Þessi náttúrulegi próteingjafi getur hjálpað þér með próteininntöku dagsins ásamt því að næra kroppinn með mikilvægum vítamínum og steinefnum, þökk sé orkugefandi ofurfæðum.
- Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Activated Charcoal duft
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Acaí duft 60 gr.
HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!)
Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.
Rauðrófuduft – 50 gr.
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Butterfly Pea duft
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]