Sýna 10–18 af 25 niðurstöður

Energy Bomb Organic 200 gr.

kr.5.090
INNIHALDSEFNI: Acaí*, Guarana*, Lucuma*, Maca* og Banani* (*lífrænt) Vertu óstöðvandi með þessum náttúrulega orkugjafa sem inniheldur 39 mg. af koffíni í hverjum skammti (5 gr.). Orkan sem þú færð er langvarandi í allt að 8 klst. og án koffínfalls!
  • Energy Bomb er ríkt af andoxunarefnum (ORAC 16500 μmol TE)
Ásamt því að geta aukið orku er þessi ofurblanda einnig rík af ýmsum vítamínum og steinefnum sem geta hjálpað kroppnum að líða sem best og ná árangri. Fullkomið í vatn, safa, jógúrt, grautinn eða þeytinginn! Einstaklega hentugt fyrir þá sem vilja fækka kaffibollum og orkudrykkjum yfir daginn. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu

Skinny Protein Organic 400 gr.

kr.5.990
INNIHALDSEFNI: Hemp Prótein*, Baunaprótein*, Spirulína*, Alfalfa* og Moringa* (*lífrænt) Skinny Protein er 62% hágæða prótein sem er auðvelt til upptöku í líkamanum og 38% öflugar grænfæður sem innihalda mikilvæg vítamín og steinefni.
  • Skinny Protein býr svo vel að innihalda allar nauðsynlegu amínósýrurnar.
Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu

Matcha duft

kr.2.290kr.9.990
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice. Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te. Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í  smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.

MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:

• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan  Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.  

Plant Protein 400 gr.

kr.5.990
INNIHALDSEFNI: Baunaprótein* (Spánn), Rísprótein* (Spánn), Maca* (Perú), Lucuma* (Perú) og Banani* (Perú). *lífrænt vottað Plant Protein er hreint auðmeltanlegt plöntuprótein sem inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og 9 gr. af próteini í hverjum skammti (15 gr.) Þessi náttúrulegi próteingjafi getur hjálpað þér með próteininntöku dagsins ásamt því að næra kroppinn með mikilvægum vítamínum og steinefnum, þökk sé orkugefandi ofurfæðum.
  • Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Hvað með að gæða sér á einum gulrótarköku þeyting sem inniheldur Plant Protein? Sjá uppskrift hér. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu Vegan Búðin Faxafen 14

Activated Charcoal duft

kr.1.494kr.9.990
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT. Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
  • 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
  • Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
  • Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
  • Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar   hér.
  • Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis   hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Kringlu, Smáralind, Skeifu, Garðabæ, Spöng, Akureyri og Eiðistorg Athugið að ekki ráðlagt að innbyrða lyf nema nokkrum klst. fyrir eða eftir inntöku á Activated Charcoal svo það hafi ekki áhrif á virkni lyfsins. Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur ein teskeið eða 5 gr. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

Acaí duft 60 gr.

kr.2.190

HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!) Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.

Rauðrófuduft – 50 gr.

kr.2.490

FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI

Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!   

Butterfly Pea duft

kr.2.290
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum. Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun. Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]   

Cacao Lover Organic 200 g.

kr.1.947
Hrátt kakó frá Perú er þekkt fyrir mikið magn andoxunarefna og að geta bætt skapið. Í þessari dýrindis kakó blöndu frá My Raw Joy getur þú öðlast þann ávinning ásamt því að innbyrða mikið magn næringarefna!
  • Hráfæði, vegan & lífrænt
  • Mjög ríkt af trefjum!
  • 0% aukaefni