Mjúkir Bamburstar
Blá Spirulína
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt.
✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer!
Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn.
Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram
JÓLA OFURSKÁL 🎄
- Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
- 1-2 tsk. af blárri spirulínu
- dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
- 2 msk. af jógúrti
- 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
- 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
- 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Maldives Mood Combo
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA!
Mumbai Mood hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum ananas og mangó ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar ?
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Activated Charcoal duft
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Pink Latte Pakkinn
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu.
Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.
INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:
- Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
- Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
- Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance
UPPSKRIFT AF MOON MILK
- 1 tsk. Moon Balance
- 1 tsk. Plant Collagen
- 1 bolli plöntumjólk
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Fiji Feelin’ Combo
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Maldives Mood Shampoo Bar
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU!
Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af mangó og ananas.
Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Fiji Feelin Shampoo Bar
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU!
Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu.
Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti
Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu.
Í HVERJUM SKAMMTI:
Kaloríur: 99
Prótein: 19,4 gr.
Kolvetni: 0,8 gr.
Fita: 2,2 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.