Choco Bar with Rawffee Organic 30 g.
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur dýrindis kaffi fyllingu sem enginn súkkulaði og kaffi unnandi má láta framhjá sér fara!
Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur.
Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar.
Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ
Rauðrófuduft – 50 gr.
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Butterfly Pea duft
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]
Hazelnut Choco Marbles Organic 50 g.
Á 50% AFSLÆTTI SÖKUM STIMPILS, 27. APRÍL '24 EN Í FÍNU LAGI MEÐ ÞÆR ENNÞÁ 🤎
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar heslihnetur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Hyams Heaven Combo
Hyam’s Heaven sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin eru fullkomin fyrir viðkvæma og börn þar sem þau innihalda engin ilmefni.
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
D3 vítamín 90 hylki
D3 vítamín hylkin frá OrangeFit eru 100% náttúruleg og vegan en þau eru framleidd úr mosa.
- Í hverju hylki eru 25 μg (1000IU) af D3 vítamíni en ráðlagður dagskammtur er 10-20 μg (400-800IU) á dag. Þar af leiðandi færðu ráðlagðan dagskammt úr einu hylki.
Cacao Lover Organic 200 g.
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.