Maldives Mood Conditioner Bar
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Rauðrófuduft – 50 gr.
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Energy Cookie Organic with Cacao and White Choc 50 g.
Þessi orkugefandi hrákaka er fullkomið "guilt-free" snarl til að leyfa sér í amstri dagsins. Kakan er mjúk og virkilega bragðgóð!
- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Buckwheat Granola Organic 100 gr.
BÓKHVEITI GRANÓLA ER FULLKOMIÐ MEÐ MORGUNMATNUM EN EINNIG HENTUGT SNARL YFIR DAGINN 😋
Inniheldur næringarrík fræ á borð við graskersfræ, hörfræ, sesamfræ og sólblómafræ sem gott er að bæta við fjölbreytt matarræði fyrir ýmis næringarefni. Þetta granóla inniheldur ríkulegt magn af trefjum sem styður við heilbrigða meltingu og bókhveitið er spírað þannig það er ríkt af andoxunarefnum og magnesíum. Einnig er að finna ýmis B-vítamín og steinefni. Þessi vara er að sjálfsögðu sykuralaus, eini sætugjafinn eru rúsinur og döðlur. ✓ glútenlaust ✓ lífrænt vottað ✓ orkugefandi ✓ fljótlegtButterfly Pea duft
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]
Hazelnut Choco Marbles Organic 50 g.
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar heslihnetur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Cacao Lover Organic 200 g.
SPF 25 Steinefna Sólarvörn
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
- 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
- Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Gua Sha
Gua Sha frá UpCircle er hannað til að minnka spennu í andlitsvöðva og draga úr bólgum.
"Gua Sha" er aldagömul kínversk hefð sem hefur verið notuð í lækningaskyni þar sem mjúkur steinn er nuddaður með húðinni til að minnka spennu.
Einstaka lögun steinsins gerir þér kleift að móta andlitið ásamt því að hjálpa til við sogæðarennsli sem getur dregið úr þrota og örva blóðflæði fyrir heilbrigðan ljóma í andliti.
Þú getur svolítið stjórnað ákafanum á nuddinu, allt frá léttum strokum til ögn dýpri þrýstings. Þú getur einnig notað brúnina á steininum til að skafa varlega húðina sem er talið geta hjálpað endurnýjunarferli húðfrumna.
Bónus ráð: notaðu andlitsserumið frá UpCircle sem nuddolíu!
“With the cost of living increasing, indulging in self-care is more important than ever for our mental health. One of the best things about using a gua sha stone or eye roller to massage yourself is that you can easily reap the benefits without leaving your own home. It’s a pleasurable and short addition to your established skincare routine. There’s nothing complicated about it and you can do a facial massage yourself, saving lots of money compared with having a facial at a salon". - Anna Brightman, co founder UpCircle Beauty
“With the cost of living increasing, indulging in self-care is more important than ever for our mental health. One of the best things about using a gua sha stone or eye roller to massage yourself is that you can easily reap the benefits without leaving your own home. It’s a pleasurable and short addition to your established skincare routine. There’s nothing complicated about it and you can do a facial massage yourself, saving lots of money compared with having a facial at a salon". - Anna Brightman, co founder UpCircle Beauty
Eye Roller
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!"
Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi.
Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér!
Bónus: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
D3 vítamín 90 hylki
D3 vítamín hylkin frá OrangeFit eru 100% náttúruleg og vegan en þau eru framleidd úr mosa.
- Í hverju hylki eru 25 μg (1000IU) af D3 vítamíni en ráðlagður dagskammtur er 10-20 μg (400-800IU) á dag. Þar af leiðandi færðu ráðlagðan dagskammt úr einu hylki.