Sýna 37–48 af 81 niðurstaða

Cacao Lover Organic 200 g.

kr.1.603
Hrátt kakó frá Perú er þekkt fyrir mikið magn andoxunarefna og að geta bætt skapið. Í þessari dýrindis kakó blöndu frá My Raw Joy getur þú öðlast þann ávinning ásamt því að innbyrða mikið magn næringarefna!
  • Hráfæði, vegan & lífrænt
  • Mjög ríkt af trefjum!
  • 0% aukaefni

D3 vítamín 90 hylki

kr.3.290
D3 vítamín hylkin frá OrangeFit eru 100% náttúruleg og vegan en þau eru framleidd úr mosa.
  • Í hverju hylki eru 25 μg (1000IU) af D3 vítamíni en ráðlagður dagskammtur er 10-20 μg (400-800IU) á dag. Þar af leiðandi færðu ráðlagðan dagskammt úr einu hylki.
D3 er líkamanum afar mikilvægt en það styður við ónæmiskerfið og heilbrigði beina, tanna og vöðva. Líkaminn getur framleitt D3 vítamín sjálfur með hjálp sólargeisla en við á Íslandi búum ekki svo vel að fá mikla sól marga mánuði af árinu. Þar af leiðandi getur verið gott að grípa í þessa hentugu lausn til að kroppurinn haldist kátur allan ársins hring!  Við hvetjum þig til að taka hylki samhliða mat sem inniheldur holla fitu, eins og til dæmis avókadó eða valhnetur. Það getur stuðlað að betri upptöku í líkamanum. --- ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1 hylki. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

Hyams Heaven Combo

kr.3.206
Hyam’s Heaven sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin eru fullkomin fyrir viðkvæma og börn þar sem þau innihalda engin ilmefni. Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Cancún Caress Hárnæringarstykki

kr.1.194
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Your Super bæklingur

kr.0

ÚTPRENTAÐUR YOUR SUPER BÆKLINGUR MEÐ FRÓÐLEIK & NÆRINGARRÍKUM UPPSKRIFTUM

Þessi bæklingur er frábær kynning á vörunum frá Your Super sem hafa verið að bæta lífsgæði á heimsvísu með sínum dásamlegu lífrænu ofurblöndum 🌿 Þú finnur meðal annars smoothie uppskriftir og heita drykki sem geta aukið orkustig, bætt svefngæði og dregið úr sykurlöngun svo eitthvað sé nefnt! Við mælum einnig með því að þú grípir 5 daga detox prógramið útprentað og kynnir þér það nánar.

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.4.490
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  

Hyams Heaven Sjampóstykki

kr.1.393
  • Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
  • Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Inniheldur einungis 5 hráefni
  • Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
  • Handgert í USA

Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!


Mini Face Serum with Coffee + Rosehip Oil

kr.1.990
Lífrænt og margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum! Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Samþykkt af húðlæknum
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa notað þetta serum sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þú getur sett serumið á rakakrem sem bindur rakann betur í búðinni.

Chai Prótein 500 gr.

kr.4.392

PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ CHAI BRAGÐI, MÖGULEGA ÞAÐ FYRSTA Á LANDINU?

"HOLY MOSES ÞETTA ER GOTT!" Var það fyrsta sem Helene, stofnandi Rawnice, sagði þegar hún smakkaði lokaútgáfuna af nýja Chai próteininu þeirra eftir 20+ prófraunir! Hver skammtur inniheldur 22 gr. af próteini en einnig magn af trefjum og meltingarensímum til að stuðla að heilbrigðri meltingu. Próteinið er bragðbætt með stevíu, kanil, kardamommu og engifer extract. Þetta prótein býr yfir ákveðinni "hlýju" og getur sett góðan svip á daginn eins og bolli af chai latte iðulega gerir. Þú bara verður hreinlega að prófa

Greens 300 gr.

kr.3.493
Byrjaðu daginn á grænum safa með því að setja eina skeið af Greens frá OrangeFit í vatn til að fá 24 tegundir af mismunandi ávöxtum og grænmeti. Þá uppfyllir þú strax 30% af þínum ráðlagða vítamín dagskammti en Greens er einungis sneisafullt af trefjum og andoxunarefnum. Ef þér finnst Greens ekki gott eitt og sér í vatnsglas, þá er ekkert mál að skella einni skeið í jógúrtið eða þeytinginn.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 skeiðar. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

Collagen Booster

kr.3.143
Collagen Booster frá OrangeFit inniheldur sérstaka samsetningu af hýalúrón, amínósýrum, B vítamíni, C vítamíni og sink. Varan er 100% plöntumiðuð og náttúruleg, hentar því þeim sem fylgja plöntumiðuðu mataræði og gera strangar gæðakröfur. Þú setur einfaldlega eina skeið í vatn, safa, þeyting eða hvað sem hugurinn girnist.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

HERO Vanillubragð

kr.3.992
Ertu að leita þér af næringarríkum og fljótlegum morgunverðardrykk? HERO vanilludrykkurinn frá Orange Fit er fljótleg og bragðgóð morgunverðarmáltíð fyrir fólk sem vill ná inn mikilvægum næringarefnum í upphaf dags til að tækla verkefnin framundan. Þú setur einfaldlega 4-6 skeiðar í vatn eða þína eftirlætis mjólk. Þessi plöntumiðaði morgunverðardrykkur frá OrangeFit inniheldur einungis raunverulegt fæði, engan tilbúning og engann viðbættan sykur né önnur óþarfa aukaefni. Máltíðin inniheldur til dæmis prótein, omega-3 fitusýrur og trefjar. Þó svo að við köllum þetta morgunverðardrykk að þá er þér velkomið að fá þér hann í hádeginu eða á öðrum tímapunkti yfir daginn. Ein máltíð inniheldur: Kaloríur: 411 Prótein: 30 gr. Kolvetni: 47,2 gr. Fita: 11,5 gr. Trefjar: 6 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.