Sýna 37–48 af 123 niðurstöður

Cashew Spread Organic 200 g.

kr.1.590
DÝRINDIS KASJÚHNETUSMJÖR SEM ER 100% LÍFRÆNT & INNIHELDUR AÐEINS VIRKJAÐAR HNETUR Þetta kasjúhnetusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er virkilega bragðgott eitt og sér en einnig afar hentugt í allskonar uppskriftir sem og í þeyting og sem topping. Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. sem eykur næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. Þessi vara er handgerð af yndislegu fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi og flokkast varan sem hráfæði þar sem hún er unnin undir 42° C. Allar vörur frá My Raw Joy eru ávallt án pálmolíu og án hertar fitu. Ásamt því innihalda vörur frá My Raw Joy aldrei unninn sykur. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu

Your Super Hristibrúsi

kr.1.990
Taktu ofurfæðurnar með þér á æfingu í þessum Your Super brúsa! Ath. til í takmörkuðu upplagi.
  • 500 ml. brúsi með 2 hólfum til að geyma prótein & ofurfæði
  • Inniheldur hristi bolta til að gera sjeik á staðnum
  • Auðvelt að þrífa en það má setja hann í uppþvottavél
  • Fullkomið fyrir/eftir æfingu eða þegar þú ert á ferðinni!
  • Brúsinn er úr BPA fríu plasti

Augnkrem með Hlyntré og Kaffi

kr.3.290
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11   

Raw Plain Chocolate Organic 90 g.

kr.690
Dýrindis hrátt 67% súkkulaði sem býr þó yfir rjómakenndri áferð og er 100% lífrænt og vegan Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Fiji Feels Combo

kr.2.986
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar! Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Fiji Feels sjampóstykki

kr.1.990
  • Náttúrulegt hársápustykki sem mýkir hárið og nærir
  • Ilmar af kryddaðri vanillu og sætum kókos
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Án SLS og án parabena
  • Handgert í USA
Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!

Aura Svitalyktareyðir

kr.3.490

LANG VINSÆLASTA VARAN FRÁ AWAKE ORGANICS EN ÞESSI MARGVERÐLAUNAÐI SVITALYKTAREYÐIR ER HREINN, NÁTTÚRULEGUR OG VIRKAR!

Svitakremið frá Awake organics er gert úr náttúrulegum efnum og inniheldur ekkert ál, engin paraben, súlföt, þalöt eða efni unnin úr jarðolíu. AURA INNIHELDUR HINSVEGAR CERA ALBA EÐA BÝFLUGNAVAX OG ER ÞVÍ EIN AF ÞEIM FÁU VÖRUM SEM ER EKKI 100% VEGAN HJÁ OKKUR. Engin rotvarnarefni eru í kreminu. Því er mælt með að geyma kremið á dimmum og köldum stað og nota hreinar hendur. Þá á svitakremið að endast í 6-12 mánuði eftir að krukkan er opnuð. Helstu innihaldsefnin eru: Leirefni, matarsódi og “arrowroot” hjálpa til við að halda húðinni undir höndunum þurri. Blanda af fjórum lífrænum ilmkjarnaolíum (sítrónugrasi, lavender, rósmarín og piparmyntu) gefur mildan og þægilegan ilm, hefur róandi áhrif á húðina undir höndunum og minnkar svitalykt. Blanda af kaldpressuðum kókos-ólífuolíum og býflugnavaxi gerir það að verkum að auðvelt er að bera kremið á og það smýgur fljótt og vel inn í húðina. Inniheldur 50 gr. og er í glerkrukku með loki úr endurvinnanlegu áli    

Næturkrem með Hyaluronic Sýru og Bláberja Þykkni

kr.4.890
  • Milt, lyktarlaust og nærandi næturkrem sem hentar öllum húðtýpum
  • Inniheldur hyaluronic sýru sem þéttir á húðinni og viðheldur raka
  • Inniheldur bláberjaþykkni sem er ríkt af andoxunarefnum
  • Framleitt á Englandi úr náttúrulegu og endurnýttu hráefni
ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11         

Bambus Rör

kr.396
  • 2 sogrör úr lífrænum bambus
  • 1 hreinsibursti fyrir rörin
  • Kemur í Your Super pyngju
  • Handunnin í Víetnam
  • 100% niðurbrjótanleg

Cancún Caress Sjampóstykki

kr.1.493

Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ?

Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA.

Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.

kr.392kr.4.392
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,4 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Your Super Krús

kr.445
Það er fátt betra en hvetjandi krús
  • 325 ml. að stærð eða 11 oz.
  • má þvo í uppþvottavél
  • 100% keramik