-50%
Cosmetic Spatulas
kr.690 kr.345
- Tvær skeiðar í tveimur stærðum
- Notað fyrir aukið hreinlæti í snyrtivörunum þínum
- Framleitt úr málmblöndu og 100% plastlausar
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Aðeins 2 stk. eftir á lager
Vörunúmer:
UC24
Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE
Þér gæti einnig líkað við…
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem veitir húðinni góðan raka og nærir hana vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð.
Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af e vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif.
Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
Þessi vara er framleidd á sjálfbæran máta í UK.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Aðrar spennandi vörur
Bambus Rör
Kókoshnetuskál
- Framleidd af náttúrunni, handverkuð úr ekta kókoshnetu.
- Hver og ein skál með sína eigin lögun og lit
- Pússuð og borin með kókosolíu
- Best er að handþvo skálarnar
- Einstaklega falleg gjafavara
- Parast vel við barbados skeið
Fjölnota Rakvélar
Þetta er sennilega síðasta rakvélin sem þú þarft að kaupa! Þú sparar töluvert til lengri tíma og jörðin auðvitað líka.
Rakvélin kemur í kraft pappír öskju og henni fylgja með 5 rakvélablöð en eitt blað dugir í 5-8 skipti, jafnvel fleiri.
Áfylling af blöðum er hægt að versla hér og í Vegan Búðinni að Faxafeni 14 en Vegan Búðin selur einnig rakvélarnar okkar.
Ath. að vörumyndin er rose gold en því miður er hún búin á lager. Við eigum bara royal golden sem er aðeins gylltari :)
Detox Pakkinn
5 DAGA HREINSUNIN FRÁ YOUR SUPER ER EIN ÁRANGURSRÍKASTA HREINSUNIN Á MARKAÐI Í DAG!
Nú er þessi öfluga hreinsun CITRUS LAB TESTED eða klínískt vottuð en það má lesa nánar um vottunina og niðurstöður rannsóknarinnar HÉR. 5 daga detox planið var hannað af reyndum næringarfræðingum ásamt Kristel, meðeiganda Your Super en það einkennist af þremur plöntumiðuðum máltíðum yfir daginn. Grænn smoothie í morgunmat, plöntumiðuð máltíð í hádegismat og berja smoothie í kvöldmat. Þú mátt einnig gæla þér á detox samþykktu snarli inn á milli. 86% þeirra sem gáfu endurgjöf tilkynntu bætta heilsu og betri líðan eftir hreinsunina. Þú HREINlega verður að prófa!DETOX PAKKINN INNIHELDUR:
Skinny Protein 400 gr. Golden Mellow 200 gr. Super Green 200 gr. Forever Beautiful 200 gr. Gut Feeling 150 gr. Tvö 5 daga detox bæklinga (einnig niðurhalanlegt hér.) e-bók með dýrindis smoothie uppskrift Athugið að til þess að fylgja planinu eftir þarf einnig að gera matarinnkaup en hugmynd af innkaupalista fylgir detox planinu!Cancún Caress Sjampóstykki
ÞÆR SEM VIÐ EIGUM Á LAGER HAFA ORÐIÐ FYRIR OGGU PONSU HNJASKI OG ERU ÞVÍ Á 30% AFSLÆTTI EN SÉST MJÖG LÍTIÐ Á ÞEIM!
Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ? Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.Cancún Caress Combo
Cancún Caress hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum límónu og kókos ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Fiji Feels Combo
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Super Green Organic 150 gr.
8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU
INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt) Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.- Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
- Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni