Energy Bomb Organic 200 gr.
INNIHALDSEFNI: Acaí*, Guarana*, Lucuma*, Maca* og Banani* (*lífrænt)
Vertu óstöðvandi með þessum náttúrulega orkugjafa sem inniheldur 39 mg. af koffíni í hverjum skammti (5 gr.). Orkan sem þú færð er langvarandi í allt að 8 klst. og án koffínfalls!
- Energy Bomb er ríkt af andoxunarefnum (ORAC 16500 μmol TE)
Skinny Protein Organic 400 gr.
INNIHALDSEFNI: Hemp Prótein*, Baunaprótein*, Spirulína*, Alfalfa* og Moringa* (*lífrænt)
Skinny Protein er 62% hágæða prótein sem er auðvelt til upptöku í líkamanum og 38% öflugar grænfæður sem innihalda mikilvæg vítamín og steinefni.
- Skinny Protein býr svo vel að innihalda allar nauðsynlegu amínósýrurnar.
Matcha duft
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice.
Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te.
Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.
MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:
• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.Plant Protein 400 gr.
INNIHALDSEFNI: Baunaprótein* (Spánn), Rísprótein* (Spánn), Maca* (Perú), Lucuma* (Perú) og Banani* (Perú). *lífrænt vottað
Plant Protein er hreint auðmeltanlegt plöntuprótein sem inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og 9 gr. af próteini í hverjum skammti (15 gr.)
Þessi náttúrulegi próteingjafi getur hjálpað þér með próteininntöku dagsins ásamt því að næra kroppinn með mikilvægum vítamínum og steinefnum, þökk sé orkugefandi ofurfæðum.
- Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
5 daga detox bæklingur
5 DAGA DETOX PLANIÐ FRÁ YOUR SUPER ER EITT ÁRANGURSRÍKASTA DETOX PRÓGRAMIÐ Á MARKAÐI Í DAG!
Ástæðan fyrir þessu er að fólk er í rauninni að koma djúphreinsunarferlinu sínu af stað með raunverulegri, hollri og hreinni fæðu án þess að vera svangur eða svöng allan tímann. Með því að borða hreint og næringaríkt og sleppa unnum óþarfa getur þú upplifað flóruna af heilsufarslegum ávinningum á borð við minni uppþembu, minni sykurlöngun, aukið orkustög og heilt yfir betri andleg og líkamleg líðan! Við hvetjum þig til að skoða e-bókina sem inniheldur 5 daga detox planið frá Your Super og ef þú vilt festa kaup í detox pakkanum þá er hann að finna hér.Detox Pakkinn
5 DAGA HREINSUNIN FRÁ YOUR SUPER ER EIN ÁRANGURSRÍKASTA HREINSUNIN Á MARKAÐI Í DAG!
Nú er þessi öfluga hreinsun CITRUS LAB TESTED eða klínískt vottuð en það má lesa nánar um vottunina og niðurstöður rannsóknarinnar HÉR. 5 daga detox planið var hannað af reyndum næringarfræðingum ásamt Kristel, meðeiganda Your Super en það einkennist af þremur plöntumiðuðum máltíðum yfir daginn. Grænn smoothie í morgunmat, plöntumiðuð máltíð í hádegismat og berja smoothie í kvöldmat. Þú mátt einnig gæla þér á detox samþykktu snarli inn á milli. 86% þeirra sem gáfu endurgjöf tilkynntu bætta heilsu og betri líðan eftir hreinsunina. Þú HREINlega verður að prófa!DETOX PAKKINN INNIHELDUR:
Skinny Protein 400 gr. Golden Mellow 200 gr. Super Green 200 gr. Forever Beautiful 200 gr. Gut Feeling 150 gr. Tvö 5 daga detox bæklinga (einnig niðurhalanlegt hér.) e-bók með dýrindis smoothie uppskrift Athugið að til þess að fylgja planinu eftir þarf einnig að gera matarinnkaup en hugmynd af innkaupalista fylgir detox planinu!Activated Charcoal duft
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Pink Latte Pakkinn
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu.
Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.
INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:
- Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
- Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
- Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance
UPPSKRIFT AF MOON MILK
- 1 tsk. Moon Balance
- 1 tsk. Plant Collagen
- 1 bolli plöntumjólk
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Acaí duft 60 gr.
HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!)
Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.