Sýna 13–24 af 58 niðurstöður

Maldives Mood Shampoo Bar

kr.1.990
Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas. "Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!" - Amy stofnandi Tropic Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.2.632
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11  

Choco Bar Organic with Banana 30 g.

kr.474
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur bananafyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.4.990
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11        

Góðgerlar 60 hylki

kr.2.632
Þessir vegan góðgerlar (já, hylkin eru líka vegan!), innihalda 13 tegundir góðgerla og DigeZyme® meltingarensím! Við mælum með því að þú takir 1 til 2 hylki á dag. Ráðlagt er að taka hylkin á tóman maga. Til dæmis þegar þú vaknar og rétt áður en þú ferð að sofa! Það er hlutverk góðra baktería í þörmunum að sjá til þess að meltingin haldist í lagi. Þarmaflóran getur stýrt fæðuinntökunni þinni og um 70% af ónæmiskerfinu er hýst í þörmunum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að þessari starfstöð líkamanns til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Til þess að hlúa enn betur að þörmunum og meltingarstarfseminni skiptir miklu máli að sofa vel, borða hreina og holla fæðu, slaka á, stunda líkamsrækt og innbyrða ráðlagðan dagskammt af góðgerlum. Góðgerla finnur þú til dæmis í (soja) jógúrti, súrkáli, súrum gúrkum, miso og tempeh. -- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.990
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka

Chai Latte Soy Wax Candle

kr.3.990
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og jólin eða unaðslegt chai latte Brennslutími er 35 klst. (180 ml.) Inniheldur endurnýtt chai-te krydd Fullkomin umhverfisvæn gjafavara  

Butterfly Pea duft

kr.2.290
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum. Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]   

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.