Sýna 13–24 af 36 niðurstöður

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.4.890
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka

Hyams Heaven Combo

kr.3.660
Hyam’s Heaven sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin eru fullkomin fyrir viðkvæma og börn þar sem þau innihalda engin ilmefni. Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Cancún Caress Hárnæringarstykki

kr.1.493
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.1.832
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Hyams Heaven Sjampóstykki

kr.1.592
  • Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
  • Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Inniheldur einungis 5 hráefni
  • Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
  • Handgert í USA

Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!


Collagen Booster

kr.4.490
Collagen Booster frá OrangeFit inniheldur sérstaka samsetningu af hýalúrón, amínósýrum, B vítamíni, C vítamíni og sink. Varan er 100% plöntumiðuð og náttúruleg, hentar því þeim sem fylgja plöntumiðuðu mataræði og gera strangar gæðakröfur. Þú setur einfaldlega eina skeið í vatn, safa, þeyting eða hvað sem hugurinn girnist.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Mini Face Serum with Coffee + Rosehip Oil

kr.1.990
Lífrænt og margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum! Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Samþykkt af húðlæknum
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa notað þetta serum sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þú getur sett serumið á rakakrem sem bindur rakann betur í búðinni.

Cosmetic Spatulas

kr.345
  • Tvær skeiðar í tveimur stærðum
  • Notað fyrir aukið hreinlæti í snyrtivörunum þínum
  • Framleitt úr málmblöndu og 100% plastlausar
 

Mini Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera

kr.3.090
Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem veitir húðinni góðan raka og nærir hana vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af e vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur! Þessi vara er framleidd á sjálfbæran máta í UK. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11      

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.290
  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi