Sýna 37–48 af 91 niðurstaða

Cancún Caress Sjampóstykki

kr.1.393

ÞÆR SEM VIÐ EIGUM Á LAGER HAFA ORÐIÐ FYRIR OGGU PONSU HNJASKI OG ERU ÞVÍ Á 30% AFSLÆTTI EN SÉST MJÖG LÍTIÐ Á ÞEIM!

Cancún Caress hársápustykkið þrífur hárið vel með náttúrulegum hráefnum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með smá keim af kókos og límónu sem minnir helst á heitt síðdegi á Playa Langosta ? Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlaust, pálmolíulaust, án SLS og án paraben. Hársápustykkið er einnig handgert í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Cancún Caress Combo

kr.2.786
Cancún Caress hársápustykkið og hárnæringin vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir yndislegum límónu og kókos ilm sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar! Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

OrangeFit Banana Prótein – 25 gr.

kr.245
Virkilega bragðgott banana prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,9 gr. Kolvetni: 1,8 gr. Fita: 2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Your Super Krús

kr.445
Það er fátt betra en hvetjandi krús
  • 325 ml. að stærð eða 11 oz.
  • má þvo í uppþvottavél
  • 100% keramik

Choco Bar Organic with Banana 30 g.

kr.345
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur bananafyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Acaí duft 60 gr.

kr.2.190

HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!) Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

Omega3 60 hylki

kr.2.790
Omega-3 fitusýrur (DHA og EPA) eru mikilvægar fyrir  almenna líkamsstarfsemi en allra helst fyrir hjartað, æðakerfi, sjón og heilastarfsemi. OrangeFit omega-3 hylkin eru 100% plöntumiðuð og náttúruleg en þau eru framleidd úr olíu frá þörungum. Olían er vandlega hreinsuð í framleiðsluferli og því án allrar sjómengunar sem og þungmálma. OrangeFit notar örþörunginn Schizochytrium í Omega-3 olíuna sína en þessi þörungur er sneisafullur af Omega-3 fitusýrum, bæði DHA og EPA í hlutföllunum 2:1. Tvö OrangeFit omega-3 hylki innihalda 300 mg DHA og 150 mg EPA sem er ráðlagður dagskammtur.
ATH. allar vörur frá OrangeFit eru alltaf með hollenskum umbúðum og þar af leiðandi fáum við enska límmiða yfir þær vörur sem þeir senda til Íslands. Á síðustu sendingu var óvart ekki uppfært BEST BEFORE dagsetninguna en undir límmiðanum sést rétt dagsetning sem er 01. október 2025.

Góðgerlar 60 hylki

kr.3.290
Þessir vegan góðgerlar (já, hylkin eru líka vegan!), innihalda 13 tegundir góðgerla og DigeZyme® meltingarensím! Við mælum með því að þú takir 1 til 2 hylki á dag. Ráðlagt er að taka hylkin á tóman maga. Til dæmis þegar þú vaknar og rétt áður en þú ferð að sofa! Það er hlutverk góðra baktería í þörmunum að sjá til þess að meltingin haldist í lagi. Þarmaflóran getur stýrt fæðuinntökunni þinni og um 70% af ónæmiskerfinu er hýst í þörmunum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að þessari starfstöð líkamanns til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Til þess að hlúa enn betur að þörmunum og meltingarstarfseminni skiptir miklu máli að sofa vel, borða hreina og holla fæðu, slaka á, stunda líkamsrækt og innbyrða ráðlagðan dagskammt af góðgerlum. Góðgerla finnur þú til dæmis í (soja) jógúrti, súrkáli, súrum gúrkum, miso og tempeh. -- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Chai Latte Soy Wax Candle

kr.3.990
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og jólin eða unaðslegt chai latte Brennslutími er 35 klst. (180 ml.) Inniheldur endurnýtt chai-te krydd Fullkomin umhverfisvæn gjafavara  

Almond Choco Marbles Organic 50 g.

kr.690
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar möndlur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri.  AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka