Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
Omega3 60 hylki
Omega-3 fitusýrur (DHA og EPA) eru mikilvægar fyrir almenna líkamsstarfsemi en allra helst fyrir hjartað, æðakerfi, sjón og heilastarfsemi.
OrangeFit omega-3 hylkin eru 100% plöntumiðuð og náttúruleg en þau eru framleidd úr olíu frá þörungum. Olían er vandlega hreinsuð í framleiðsluferli og því án allrar sjómengunar sem og þungmálma.
OrangeFit notar örþörunginn Schizochytrium í Omega-3 olíuna sína en þessi þörungur er sneisafullur af Omega-3 fitusýrum, bæði DHA og EPA í hlutföllunum 2:1.
Tvö OrangeFit omega-3 hylki innihalda 300 mg DHA og 150 mg EPA sem er ráðlagður dagskammtur.
ATH. allar vörur frá OrangeFit eru alltaf með hollenskum umbúðum og þar af leiðandi fáum við enska límmiða yfir þær vörur sem þeir senda til Íslands. Á síðustu sendingu var óvart ekki uppfært BEST BEFORE dagsetninguna en undir límmiðanum sést rétt dagsetning sem er 01. október 2025.
ATH. allar vörur frá OrangeFit eru alltaf með hollenskum umbúðum og þar af leiðandi fáum við enska límmiða yfir þær vörur sem þeir senda til Íslands. Á síðustu sendingu var óvart ekki uppfært BEST BEFORE dagsetninguna en undir límmiðanum sést rétt dagsetning sem er 01. október 2025.
Almond Choco Marbles Organic 50 g.
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar möndlur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Góðgerlar 60 hylki
Þessir vegan góðgerlar (já, hylkin eru líka vegan!), innihalda 13 tegundir góðgerla og DigeZyme® meltingarensím! Við mælum með því að þú takir 1 til 2 hylki á dag. Ráðlagt er að taka hylkin á tóman maga. Til dæmis þegar þú vaknar og rétt áður en þú ferð að sofa!
Það er hlutverk góðra baktería í þörmunum að sjá til þess að meltingin haldist í lagi. Þarmaflóran getur stýrt fæðuinntökunni þinni og um 70% af ónæmiskerfinu er hýst í þörmunum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að þessari starfstöð líkamanns til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu.
Til þess að hlúa enn betur að þörmunum og meltingarstarfseminni skiptir miklu máli að sofa vel, borða hreina og holla fæðu, slaka á, stunda líkamsrækt og innbyrða ráðlagðan dagskammt af góðgerlum. Góðgerla finnur þú til dæmis í (soja) jógúrti, súrkáli, súrum gúrkum, miso og tempeh.
--
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Chai Latte Soy Wax Candle
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum.
Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar!
Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Maldives Mood Conditioner Bar
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Choco Bar with Rawffee Organic 30 g.
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur dýrindis kaffi fyllingu sem enginn súkkulaði og kaffi unnandi má láta framhjá sér fara!
Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur.
Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar.
Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ
Rauðrófuduft – 50 gr.
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Butterfly Pea duft
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]
Hazelnut Choco Marbles Organic 50 g.
Á 50% AFSLÆTTI SÖKUM STIMPILS, 27. APRÍL '24 EN Í FÍNU LAGI MEÐ ÞÆR ENNÞÁ 🤎
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar heslihnetur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!- 100% plöntumiðað
- Lífrænt vottað
- Handgert í Tékklandi
- Hráfæði (unnið undir 42° C)
- Án pálmolíu og án hertar fitu
- Inniheldur engann unninn sykur
Hyams Heaven Combo
Hyam’s Heaven sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin eru fullkomin fyrir viðkvæma og börn þar sem þau innihalda engin ilmefni.
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
D3 vítamín 90 hylki
D3 vítamín hylkin frá OrangeFit eru 100% náttúruleg og vegan en þau eru framleidd úr mosa.
- Í hverju hylki eru 25 μg (1000IU) af D3 vítamíni en ráðlagður dagskammtur er 10-20 μg (400-800IU) á dag. Þar af leiðandi færðu ráðlagðan dagskammt úr einu hylki.
Cacao Lover Organic 200 g.
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Fiji Feelin Conditioner Bar
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Hyams Heaven Sjampóstykki
- Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
- Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
- Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
- Inniheldur einungis 5 hráefni
- Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
- Handgert í USA
Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!
Greens 300 gr.
Byrjaðu daginn á grænum safa með því að setja eina skeið af Greens frá OrangeFit í vatn til að fá 24 tegundir af mismunandi ávöxtum og grænmeti. Þá uppfyllir þú strax 30% af þínum ráðlagða vítamín dagskammti en Greens er einungis sneisafullt af trefjum og andoxunarefnum.
Ef þér finnst Greens ekki gott eitt og sér í vatnsglas, þá er ekkert mál að skella einni skeið í jógúrtið eða þeytinginn.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 skeiðar. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 skeiðar. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.
OrangeFit Vanilluprótein
Virkilega bragðgott vanilluprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti
Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu.
Í HVERJUM SKAMMTI:
Kaloríur: 99
Prótein: 20 gr.
Kolvetni: 1,4 gr.
Fita: 2 gr.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup • Skeifunni, Garðabæ, Smáralind og Kringlunni.
Vegan Búðin • Faxafeni 14
--
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Mini Face Serum with Coffee + Rosehip Oil
Lífrænt og margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum!
Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum.
Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
- Samþykkt af húðlæknum
Your Super bæklingur
ÚTPRENTAÐUR YOUR SUPER BÆKLINGUR MEÐ FRÓÐLEIK & NÆRINGARRÍKUM UPPSKRIFTUM
Þessi bæklingur er frábær kynning á vörunum frá Your Super sem hafa verið að bæta lífsgæði á heimsvísu með sínum dásamlegu lífrænu ofurblöndum 🌿 Þú finnur meðal annars smoothie uppskriftir og heita drykki sem geta aukið orkustig, bætt svefngæði og dregið úr sykurlöngun svo eitthvað sé nefnt! Við mælum einnig með því að þú grípir 5 daga detox prógramið útprentað og kynnir þér það nánar.HERO Vanillubragð
Ertu að leita þér af næringarríkum og fljótlegum morgunverðardrykk? HERO vanilludrykkurinn frá Orange Fit er fljótleg og bragðgóð morgunverðarmáltíð fyrir fólk sem vill ná inn mikilvægum næringarefnum í upphaf dags til að tækla verkefnin framundan. Þú setur einfaldlega 4-6 skeiðar í vatn eða þína eftirlætis mjólk.
Þessi plöntumiðaði morgunverðardrykkur frá OrangeFit inniheldur einungis raunverulegt fæði, engan tilbúning og engann viðbættan sykur né önnur óþarfa aukaefni. Máltíðin inniheldur til dæmis prótein, omega-3 fitusýrur og trefjar.
Þó svo að við köllum þetta morgunverðardrykk að þá er þér velkomið að fá þér hann í hádeginu eða á öðrum tímapunkti yfir daginn.
Ein máltíð inniheldur:
Kaloríur: 411
Prótein: 30 gr.
Kolvetni: 47,2 gr.
Fita: 11,5 gr.
Trefjar: 6 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Cosmetic Spatulas
Chai Prótein 500 gr.
PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ CHAI BRAGÐI, MÖGULEGA ÞAÐ FYRSTA Á LANDINU?
"HOLY MOSES ÞETTA ER GOTT!" Var það fyrsta sem Helene, stofnandi Rawnice, sagði þegar hún smakkaði lokaútgáfuna af nýja Chai próteininu þeirra eftir 20+ prófraunir! Hver skammtur inniheldur 22 gr. af próteini en einnig magn af trefjum og meltingarensímum til að stuðla að heilbrigðri meltingu. Próteinið er bragðbætt með stevíu, kanil, kardamommu og engifer extract. Þetta prótein býr yfir ákveðinni "hlýju" og getur sett góðan svip á daginn eins og bolli af chai latte iðulega gerir. Þú bara verður hreinlega að prófaMini Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð eins og hefur komið fram. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.
Star Cloud Svitalyktareyðir
- Byltingarkenndur og náttúrulegur svitalyktareyðir með góðgerlum
- Styðja við góðar bakteríur og stjórna þeim sem lykta illa
- Án ilms og ilmkjarnaolía og því fullkominn fyrir viðkvæma
- Hentar fullorðnum sem og unglingum
- Án: Bicorbonate of soda (sóda), áls, alkohóls, petrolium vara, parabena og dýraafurða og er því 100% VEGAN.
Shampoo Créme with Pink Berry
100% náttúrulegt sjampó með hágæða endurnýttum hráefnum. Þessi nýstárlega og vandaða formúla skilar miklu árangri strax en einn þvottur er á við þrjá þvotta með hefðbundnu sjampói.
Þetta sjampó er vegan og hentar öllum hártýpum á borð við afro, litað hár, þurrt hár og fitugt hár. Formúlan er auðvitað án sílíkons og súlfata.
"I'm an ex senior hairstylist of 12 years. When I blow dried and straightened my hair after using this, I was blown away."
Þú munt sennilega ekki vilja fara aftur í annað sjampó eftir að þú prófar þetta! The Telegraph lýsti vörunni sem: "a revelation" og sjampóið hefur unnið verðlaunin Top Santé Best Buy.
Acaí duft 500 gr.
Espresso Martini Soy Wax Candle
Mini Ice Cube Tray
"SÆTUSTU KLAKAR SEM ÞÚ MUNT GERA" 🌈
Algjör leikbreytir í drykkjagerð en þetta klakaform býr til 160 litla pons klaka sem gera alla drykki fallegri. Við kaup á þessu klakaformi býðst þér ókeypis 21-recipe Drinks e-bók frá Rawnice (hún er niðurhalanleg eftir kaup) 🍹 Ekki sætta þig við hefðbundna klaka þegar þú hefur kost á þessum. Allavega ekki þegar gestir eru annars vegar 🧊Rawnice Milk Frother
FLÓARI DRAUMA OKKAR
Við kynnum Rawnice mjólkurflóarann. Hann er mattur með fallegri bleikri og fjólublárri litasamsetningu og algjör gæðavara sem umbreytir drykkjunum í flóaða fegurð . Með "non-slip" gripi og öfluga virkni hefur mælum við 110% með þessum flóara .*Ath. batterí eru ekki innifalin & hann má ekki setja í uppþvottavél, nóg að handþvo hann eftir hverja notkun*
DIET Próteinmáltíð 850 gr.
Plöntumiðuð prótein máltíð full af nauðsynlegum vítamínum og steinefnum til að halda kroppnum við.
Í EINUM SKAMMTI ER AÐ FINNA:
KALORÍUR: 249 gr.
PRÓTEIN: 29 gr.
KOLVETNI: 14,9 gr.
FITA: 6,5 gr.
VÍTAMÍN: 30%
Þú setur 2x skeiðar í vatn eða þína eftirlætis mjólk.
*athugið að þessi vara er ekki glútenlaus
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup • Garðabæ og Skeifunni
—
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Caffeinated Duo Set
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11