Previous slide
Next slide
FRÍ SENDING
Allar pantanir yfir 9000 kr. er hægt að fá sent frítt á næsta Dropp afhendingarstað.
SKILAFRESTUR
Við bjóðum upp á 14 daga skilafrest. Ef þú ert ekki ánægð/ur með vöruna þá greiðum við þér að fullu til baka.
STAÐSETNING
Því miður er ekki lengur hægt að sækja til okkar en við bjóðum ódýran og snöggan sendingarmáta út um allt land.
SNYRTIVÖRUR
HEILSUVARA
SÚKKULAÐI
HÁRVÖRUR
HEILSAN FER EKKI Í FRÍ
GERÐU LÍFIÐ LITRÍKARA
Pink Pitaya duft
kr.2.490
Bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem er næringarríkur og inniheldur til dæmis trefja, C-vítamín, beta-karótín og betalain en betalain útskýrir þann fallega lit sem duftið býr yfir. Ekki bara veitir duftið kroppnum heilsufarslega ávinninga heldur gerir máltíðina bleika og girnilega!
✓ Engin aukaefni né neinum óþarfa viðbætt
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti
✓ Gefur fallegan bleikan lit sem hægt er að nota í bakstur eða matargerð
✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni
✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!
Hvað með að gera einhyrninga latte sjá hér eða þú getur jafnvel gert bleikar bollakökur sem kæmu til með að slá í gegn í næstu veislu eins og sjá má hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, Hvaleyrarbraut og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Spöng, Eiðistorgi, Akureyri, Smáralind og Kringlu.
Blá Spirulína
kr.1.743 – kr.16.990
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt.
✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer!
Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn.
Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram
JÓLA OFURSKÁL 🎄
- Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
- 1-2 tsk. af blárri spirulínu
- dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
- 2 msk. af jógúrti
- 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
- 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
- 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Activated Charcoal duft
kr.1.494 – kr.9.990
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Matcha duft
kr.2.290 – kr.9.990
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice.
Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te.
Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.
MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:
• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.Acaí duft 500 gr.
kr.6.990
Butterfly Pea duft
kr.2.290
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]
Acaí duft 60 gr.
kr.2.190
HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!)
Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.
Rauðrófuduft – 500 gr.
kr.7.990
Fáðu heilsufarslegu ávinninga rauðrófunnar með þessu þægilega rauðrófudufti sem er hægt að nota á svo marga vegu
✓ Engin aukaefni né fyllefni viðbætt
✓ Einungis 100% náttúrulegt rauðrófuduft
✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt
✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!
✓ BULK pokarnir (500 gr.) henta einnig vel ef þú ert í rekstri
Rauðrófuduft – 50 gr.
kr.2.490
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Rawnice Vanilluprótein
kr.3.690 – kr.3.990
BRAGÐGOTT VEGAN PRÓTEIN ÁN GERVISÆTU MEÐ DÁSAMLEGU VANILLU BRAGÐI
Þetta prótein er ekki einungis 100% vegan og bragðgott, heldur einnig ketóvænt, án GMO, glútenlaust og án soja. Próteinið er framleitt í Svíþjóð og inniheldur meðal annars: Rís- og baunaprótein: sem er öflugur og auðmeltanlegur próteingjafi. Inulin trefja: til að næra góðu bakteríurnar í þarmaflórunni Meltingarensín: til að auka upptöku næringarefna í líkamanum CocoMineral®, avókadó olíu og hörfræ olíu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Kringlu, Smáralind, Skeifu, Garðabæ, Spöng, Akureyri og Eiðistorg Krónan: Flatahrauni, Bíldshöfða, Skeifunni, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Akureyri og SelfossiTROPIC DAGBÓKIN
29
júl
HORMÓNAÞEYTINGUR
Það er eitt sem margir kvenmenn vita fyrir víst, og það er að einkenni fyrirtíðarspennu eru alls ekki spennandi. ...
10
júl
OFURFÆÐI FYRIR KARLMENN
HVAÐA OFURFÆÐI HENTAR BEST FYRIR KARLMENN?
Flestir hafa sennilega heyrt...
22
apr
DAGUR JARÐARINNAR 2022
Í dag, 22. apríl 2022 er alþjóðlegur dagur jarðarinnar. Milljarður manna um allan heim halda þennan dag hátíðlega...
13
mar
ACAÍ SKÁL
Það eru allir farnir að þekkja til acaí skála og svo virðist sem flestir séu á sömu skoðun, þær eru hreinn unaður...
ÚTSÖLUVÖRUR
- Blá Spirulína kr.1.743 – kr.16.990
-
Kókoshnetuskál
kr.1.490kr.1.192 - Activated Charcoal duft kr.1.494 – kr.9.990
SPENNANDI VÖRUR
- HERO Vanillubragð kr.4.990
- Rawnella Spread Organic 200 g. kr.1.590
-
Cancún Caress Hárnæringarstykki
kr.1.990kr.1.493